Wenger um Henry í gær: Þessa sögu segir þú ungum krökkum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. janúar 2012 09:45 Thierry Henry hljóp til Arsene Wenger eftir að hann skoraði. Mynd/Nordic Photos/Getty
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að Thierry Henry hafi bætt enn við goðsögn sína hjá Arsenal með því að skora sigurmarkið á móti Leeds í enska bikarnum í gær. Henry kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik og skoraði eina mark leiksins tíu mínútum síðar. "Hann var þegar orðin goðsögn hérna en bætti við metorðaskrána sína með þessu marki. Þetta var pínulítið eins og draumur. Þessa sögu segir þú ungum krökkum þegar þú vilt tala um fótbolta. Því miður gerast svona ævintýri ekki oft í nútíma fótbolta en þetta gekk upp í kvöld," sagði Arsene Wenger. Henry skoraði þarna sitt 227. mark fyrir Arsenal en hann gerði á dögum rúmlega sex vikna samning við félagið og það er möguleiki að framlengja hann upp í átta vikur. "Thierry hefur upplifað allt og afrekað allt. Áhrif hans sáust strax þegar hann kom inn á völlinn og hann lítur vel út líkamlega. Ég sá það strax á æfingunum að hann var í góðu formi og tilbúinn að spila. Ég hefði aldrei sett hann inn á völlinn nema að því að hann væri klár í slaginn," sagði Wenger. "Henry er sérstakur leikmaður og það er frábært fyrir félagið að fá hann aftur inn. Hann er maður sem hefur unnið allt en undirbýr sig samt hundrað prósent og kemur alltaf með ástríðu fyrir að skila sínu allra besta," sagði Wenger. "Hann finnur samt fyrir pressu og var því mjög ánægður með að skora. Hann er stoltur náungi og vill ekki valda fólki vonbrigðum," sagði Wenger.
Mest lesið Albert ekki meira með íslenska landsliðinu Fótbolti Neitar að biðjast afsökunar á niðrandi færslu um Heimi Fótbolti Íslenska landsliðið í bakgarðshlaupum klárt Sport Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk Íslenski boltinn „Þetta er þorpið manns“ Íslenski boltinn Leik lokið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Íslenski boltinn Vill að mótherji hans fari í bann eftir árekstur Formúla 1 Kane klúðraði víti og heimsmeistararnir voru fljótir að refsa Fótbolti Leikmaður Írlands dregur sig úr leikmannahóp gegn Ísrael Fótbolti Mæta til leiks gegn Ísrael: „Líður engum vel með að spila þennan leik“ Fótbolti Fleiri fréttir Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Sjá meira