Þúsundir mæta til að syrgja leiðtogann 28. desember 2011 23:30 Hágrátandi Norður-kóreski herinn syrgði hinn látna leiðtoga með miklum tilþrifum.nordicphotos/AFP
Norður-Kórea Arftakinn Kim Jong-un var í fararbroddi syrgjenda við útför föður síns í Pjongjang, höfuðborg Norður-Kóreu. Hann gekk við líkbifreiðina, með aðra hönd á bílnum en notaði hina til að heilsa fólki. Líkfylgdin tók hálfan þriðja tíma og að henni lokinni skutu hermenn 21 sinni úr rifflum sínum. Nýi leiðtoginn stóð síðan og heilsaði meðan fylkingar hermanna gengu gæsagang framhjá honum. Ekki vantaði leikrænu tilþrifin í athöfnina, ef marka má útsendingu norður-kóreska ríkissjónvarpsins. „Hvernig getur það verið að himnarnir gráti ekki?“ heyrðist hágrátandi hermaður spyrja. „Fólkið grætur allt tárum úr blóði.“ Af sumum myndunum að dæma er þó ekki annað að sjá en himnarnir hafi heldur ekki staðist mátið og hellt úr skýjum yfir syrgjendurna. Arftakinn hefur treyst völd sín síðustu daga með því að bæta við sig embættum og titlum, bæði innan flokksins og í yfirstjórn hersins. Ungur aldur hans og lítil reynsla gerir þó að verkum að nokkur óvissa ríkir um framtíðarstöðu hans í valdakerfinu. Hann hafði enda ekki haft tuttugu ár til að búa sig undir hlutverkið, eins og faðir hans, heldur aðeins tvö ár. Hann tekur við einu fátækasta og einangraðasta ríki veraldar. Auk þess að þurfa að finna leiðir til að tryggja íbúum landsins daglega fæðu og aðrar helstu lífsnauðsynjar þarf hann að takast á við harða gagnrýni og þrýsting frá öllum helstu ríkjum heims vegna kjarnorkuvopna, sem faðir hans var búinn að koma sér upp í einhverri mynd. Athygli sérfræðinga í málefnum Norður-Kóreu beinist samt mjög að innsta hring valdakjarnans í kringum Kim, og var grannt fylgst með því hverjir væru áberandi nálægt honum í athöfninni í gær. Þar er helst nefndur Jang Song-thaek, mágur Kim Jong-il, en hann er varaformaður varnarmálanefndar ríkisins og mun líklega gegna lykilhlutverki við að koma nýja leiðtoganum inn í embættið. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Sjá meira