Tap Man. City nam 36,3 milljörðum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. nóvember 2011 06:30 Eigandi Manchester City stefnir á að félagið geti staðið undir eigin rekstri í framtíðinni.nordicphotos/getty
Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City gaf það út í gær að tap félagsins á rekstrarárinu 2010-2011 hefði alls numið 194,9 milljónum punda, eða tæplega 36,3 milljörðum króna. Þetta er vitaskuld mesta tap sem enskt knattspyrnufélag hefur tilkynnt fyrir aðeins eitt ár og sýnir hversu stórtækir eigendur félagsins hafa verið síðan þeir keyptu það í ágúst árið 2008. Á þessum tíma hafa þeir breytt liðinu úr miðlungsúrvalsdeildarliði í eitt öflugasta félagslið Englands, og þótt víðar væri leitað, en það trónir nú á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. Forráðamenn félagsins segja að tapið hafi ekki komið á óvart og sé í samræmi við áætlanir félagsins sem tóku mið af því að leggja háar upphæðir í félagið fyrstu þrjú árin. Enda hefur liðið verið styrkt með gríðarsterkum leikmönnum sem margir eru meðal þeirra allra launahæstu í knattspyrnuheiminum. Forráðamennirnir segja hins vegar líka að markmiðið sé að félagið verði sjálfbært með árunum. Tekjur þess hafi aukist mikið síðustu ár og ef það standi sig jafn vel og stefni í sé mögulegt að þær muni hækka enn meira á komandi árum. Velta Manchester City á þessu sama tímabili nam 153,2 milljónum punda, sem er met hjá félaginu. Samkvæmt nýjum reglum Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, um rekstur knattspyrnufélaga má ekkert félag skila meira tapi en 40 milljónum punda ár hvert, frá og með núverandi rekstrarári. Forráðamenn City eru vongóðir um að geta staðist þær kröfur enda sé liðið það vel mannað í dag að ekki þurfi að eyða jafn miklu í leikmannakaup og á síðustu árum.
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira