Sinnuleysi vegna neyðar í Sómalíu, Keníu og Eþíópíu 19. júlí 2011 05:00 Konur frá Sómalíu með ungbörn bíða aðstoðar í flóttamannabúðum í Mógadisjú í Sómalíu. Mynd/AP „
Söfnunin hefur gengið mjög hægt, enda hefur hún ekki fengið mikla kynningu í fjölmiðlum," segir Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri samtakanna Barnaheill, sem nú reynir að útvega fé til aðstoðar fólki í Sómalíu, Kenía og Eþíópíu. Talið er að hungursneyð vofi nú yfir níu milljónum manna í þessum þremur löndum. Allt að helmingur þeirra er börn og mörg þessara barna eru nú þegar vannærð. Í Sómalíu er ástandið verst, en þar er nú talið að þriðji hver íbúi sé við þröskuld hungursneyðar. „Í samfélagi eins og Sómalíu, þar sem innviðir eru engir vegna áratuga átaka, reynir fólk bara að þrauka og má ekki við neinum áföllum. Þetta hefur verið erfitt þarna í áratugi. Fólk treystir á rigningarnar og að búfénaðurinn fái að éta, en þegar þurrkar verða þá fellur búfénaðurinn fyrst og síðan fólkið. Ef engin aðstoð berst þá blasir ekkert annað en dauðinn við fólki." Hér á landi eru þrenn hjálparsamtök að safna fé til aðstoðar fólki á þurrkasvæðunum í Afríku. Auk Barnaheilla eru það UNICEF á Íslandi og Rauði krossinn. Petrína segir erfitt að vekja athygli almennings á neyðinni, mun erfiðara en til dæmis þegar náttúruhamfarir urðu í Japan og Haítí nýverið, eða þegar flóðbylgjan mikla reið yfir í Suðaustur-Asíu fyrir nokkrum árum. „Harmleikurinn er samt ekkert minni. Þarna eru níu milljón manns sem eiga yfir höfði sér að deyja úr hungri ef ekki verður brugðist við. Þetta er eitt versta neyðarástand sem fólk á þessu svæði hefur séð." Hún segir starfsfólk hjálparstofnana lengi hafa velt fyrir sér hvað ráði bæði fréttamati fjölmiðla og viðbrögðum almennings. Hún segir að skyndilegar hamfarir virðist vekja meiri athygli en neyð sem kemur hægt og rólega, eins og þurrkar og hungursneyð. „Reynslan sýnir að þar sem náttúruhamfarir valda skyndilegri neyð er miklu auðveldara að fá almenning í lið með sér. Kannski hefur þetta líka eitthvað með það að gera að bæði Japan og Haítí standi okkur nær en löndin í Afríku," segir Petrína og minnir líka á íslensku rústabjörgunarsveitina sem var send til Haítí, „sem var náttúrulega ánægjulegt og fékk mikla umfjöllun í fjölmiðlum hér á landi". gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Innlent Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Innlent Fleiri fréttir Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Sprengja sprakk við hótel Macron í Damaskus Meta hvort hefja eigi réttarhöld yfir meintum morðingja Kirk Ákærð fyrir að kæfa börn sín sem hún sagði hafa látist af völdum bólusetningar Hamas byrjar að sleppa tökunum á Gasa Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Fimmtán látnir í aurskriðum og flóðum í Kína Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Úkraínumenn uppiskroppa með loftvarnarflugskeyti Rússar ógnuðu bresku herskipi sem siglir við Ísland Hvetur leiðtoga Nató til að taka afgerandi ákvarðanir Telja gestinn úr öðru sólkerfi mun eldri en sólin okkar Vilja nýja rannsókn á Farage vegna gjafa frá sakamanni Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent