Lið í ensku úrvalsdeildinni hafa áhuga á Eggerti Henry Birgir Gunnarsson skrifar 14. desember 2011 08:00 Eggert Gunnþór verður ekki í vandræðum með að finna sér nýtt félag ákveði hann að yfirgefa herbúðir Hearts. Mynd/Anton
Afar fátt bendir til þess að landsliðsmaðurinn Eggert Gunnþór Jónsson verði áfram í herbúðum skoska félagsins Hearts. Eggert, sem á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið, hefur ekki viljað framlengja við félagið. „Við erum með samning á borðinu og miðað við stöðuna þar núna kemur ekki til greina að skrifa undir þann samning. Það er bara allt í rugli þarna,“ sagði Magnús Agnar Magnússon, umboðsmaður Eggerts. Eigandi Hearts, Vladimir Romanov, hefur gefist upp á því að gera Hearts að einhverju stórveldi eftir að hafa sett drjúgan skilding í félagið síðustu ár. Hann er að reyna að selja félagið og meðan svo er hreinlega neitar hann að setja meiri pening í það. Fyrir vikið hafa leikmenn félagsins ekki fengið greidd laun síðustu tvo mánuði og ekki er útlit fyrir að þeir fái borgað fyrr en Romanov hefur náð að selja. Áhugasamir kaupendur eru í viðræðum við hann og því fyrr sem salan klárast, þeim mun betra verður það fyrir félagið. „Eggert var alveg til í að skoða það að vera áfram en á meðan staðan er svona setjum við samninginn í frost. Hann er ekkert búinn að hafna honum en við verðum að sjá til hvað gerist í framhaldinu.“ Eins og áður segir er lítið eftir af samningi Eggerts við félagið og hann getur farið frítt frá Hearts næsta sumar. Eggert er fastamaður í íslenska landsliðinu og hefur staðið sig vel í Skotlandi. Magnús Agnar segir að honum standi ýmislegt spennandi til boða. „Það þarf ekkert að auglýsa Eggert. Menn vita af honum enda hefur hann staðið sig vel. Það er talsverður áhugi á honum. Sá áhugi er bæði frá Englandi og meginlandi Evrópu,“ sagði Magnús en hvaða lið í Englandi eru þetta? „Ég get ekki sagt nöfn þeirra enda vilja þau það ekki. Þessi lið eru samt í úrvalsdeildinni og B-deildinni á Englandi.“
Mest lesið Hafþór reyndi við þyngd sem hefði fært honum tugi milljóna Sport Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Fótbolti Vann Steraleikana en hefði endað síðastur á Ólympíuleikunum Sport HM í hættu? Messi meiddist í síðasta leik sínum fyrir HM Fótbolti Stúkan: FH í miklum vandræðum Fótbolti Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Formúla 1 Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Fótbolti Gengi Framara komið skemmtilega á óvart Fótbolti Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Enski boltinn Bruno bætti metið eða hvað? Enski boltinn Fleiri fréttir Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Harðorð skýrsla og allt í skrúfunni hjá Southampton Slot tjáði sig loks eftir árás Salah Fyrirliðinn víðsfjarri þegar Tottenham gæti fallið Englandsmeistaraklipping á Selfossi: „Dásamlegir tímar“ Liverpool gæti komið Brighton í Meistaradeild Evrópu Steve McClaren til Rotherham Arsenal í skrúðgöngu daginn eftir úrslitaleikinn Hefnist fyrir klúðrið á Old Trafford Fögnuðu fram á morgun: „Þeir hlæja ekki lengur“ Sjáðu mörkin: Titilvonir City urðu að engu og falldraugir vofir yfir Tottenham Sjáðu Englandsmeistara Arsenal tryllast af fögnuði Falldraugurinn fylgir Tottenham í lokaumferðina Guardiola tjáði sig um framtíð sína í starfi Arsenal er Englandsmeistari Sjá meira