Steve Clarke ekki hrifinn af landsleikjafríinu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. október 2011 22:00 Clarke, lengst til vinstri, með Kenny Dalglish á æfingu Liverpool-liðsins. Nordic Photos / Getty Images
Steve Clarke, aðstoðarstjóri Kenny Dalglish hjá Liverpool, er ekki hrifinn af landsleikjafríinu og telur að það muni hafa slæm áhrif á undirbúning liðsins fyrir stórleikinn gegn Manchester United um næstu helgi. Liverpool er sem stendur í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar en United er á toppnum. Viðureign liðanna á Anfield ár hvert er alltaf beðið með mikilli eftirvæntingu og er það engin undantekning í ár. Clarke segir að þeir leikmenn sem eru með sínum landsliðum nú komi þreyttir til baka, sérstaklega menn eins og Luis Suarez og Lucas Leiva sem eru nú staddir í Suður-Ameríku. „Við fáum ekki alla leikmenn saman á æfingu fyrr en daginn fyrir leikinn,“ sagði Clarke í viðtali á heimasíðu Liverpool. „Það eru vissulega vonbrigði en við verðum bara að takast á við það.“ „Þeir sem urðu eftir verða að halda áfram að æfa og sinna því sem þarf að gera. Það er nóg að gera á æfingunum og ef okkur tekst að undirbúa þá betur fyrir leikinn gegn United er það af hinu góða.“ „En það eru bara 5-6 leikmenn sem eru með okkur á æfingasvæðinu þessa dagana. Aðrir eru með sínum landsliðum og þeir sem eru í Suður-Ameríku koma ekki til baka fyrr en seinni partinn á fimmtudaginn. Flestir aðrir koma á miðvikudaginn.“ „Vonandi tekst okkur að undirbúa liðið á föstudaginn en þetta eru vissulega erfiðar aðstæður. Það eina sem maður vonar er að leikmennirnir komi heilir heilsu til baka.“
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Sport Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Íslenski boltinn Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Sjá meira