Anelka: Vð getum alveg náð United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. janúar 2011 21:32 Nicolas Anelka fagnar marki með Salomon Kalou. Mynd/AP
Nicolas Anelka, franski framherjinn hjá Chelsea, trúir því að Chelsea geti náð Manchester United og unnið enska meistaratitilinn annað árið í röð. Chelsea er níu stigum á eftir United fyrir leiki helgarinnar og auk þess búið að spila leik meira. Anelka veit kannski hvað hann syngur því hann tók þátt í mikilli endurkomu hjá Arsenal tímabilið 1997-98. Arsenal var þá 13 stigum á eftir Manchester United en vann tíu leiki í röð og tókst að lokum að tryggja sér titilinn. „Það verður erfitt að ná þeim en allt er mögulegt. Við verðum að vinna alla okkar leiki sem við eigum eftir. Kannski náum við því en það er allt annað en auðvelt að vinna alla leiki. Mikilvægast er þó að vinna leikina á móti liðunum í kringum okkur," sagði Nicolas Anelka en Chelsea á eftir að mæta United tvisvar sinnum í deildinni. „Þegar ég var með Arsenal 1998 þá höfðum við trúna enda er allt hægt í fótbolta. Leikmennirnir í Chelsea skortir ekki sjálfstraust enda vitum við allir hvað við getum. Við þurfum samt að spila saman inn á vellinum og allir ellefu leikmennirnir þurfa að vinna saman. Það hefur verið vandamálið að undanförnu," sagði Anelka. Nicolas Anelka hefur ekki skorað í ensku úrvalsdeildinni síðan 30. október en hann hefur leikið níu deildarleiki í röð án þess að skora. Anelka hefur alls skorað 11 mörk í 26 leikjum í öllum keppnum á þessarri leiktíð og hann skoraði í bikarsigrinum á móti Ipswich um síðustu helgi.
Mest lesið Áfall fyrir landsliðið og Söndru sem var borin af velli Fótbolti Ellefu ára senuþjófur fékk að vaka: „Ef hann ætlar að vinna þá þarf hann pepp“ Sport Tókust á um Íslendinginn: „Ætlarðu að vera svona barnalegur?“ Fótbolti Sveindís Jane tileinkaði kærasta sínum markið Fótbolti Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Enski boltinn Gaui Þórðar opnar sig um veikindi: „Erfiðir dagar, mánuðir og vikur“ Íslenski boltinn Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Enski boltinn Orri fékk rautt fyrir kjaftbrúk í blálokin Fótbolti Aðalmarkvörður Íslands úr leik og Arnar kallaði á Anton Fótbolti Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Enski boltinn Fleiri fréttir Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Tottenham sökk dýpra og enn án sigurs í fimm leikjum Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands JJ Gabriel mættur til Barcelona Brentford taplausir eftir sigur á bitlausu liði Chelsea Richarlison hafnaði Vasco da Gama: „Við reyndum allt“ Flestir Íslendingar halda með Liverpool Ngumoha, Palmer og Alexander-Arnold í hópnum sem mætir Spáni Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Ungstirni Manchester City tryggðu liðinu stórsigur Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Boehly selur og kveður Chelsea Sunderland vann í fyrsta Evrópuleiknum síðan 1973 Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan Sjá meira