Erlent

Níu farast í aurskriðum á Ítalíu

Að minnsta kosti níu manns hafa farist og sex er saknað á norðurvesturhluta Ítalíu eftir miklar aurskriður á þessum slóðum í gærdag.

Skriðurnar komu í kjölfar mikil úrhellis undanfarna tvo daga. Bærinn Borghetto di Vara varð einna verst úti en þar fylltust allar götur bæjarins af leðju. Sex bæjarbúa er saknað eftir gærdaginn. Björgunarstarf og hreinsun bæjarins gengur hægt vegna skorts á vinnuvélum og búnaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×