Erlent

Java nashyrningurinn útdauður í Víetnam

Java nashyrningurinn er útdauður í Víetnam en líklega var sá síðasti þeirra í landinu skotinn af veiðiþjófum.

Þetta kemur ekki á óvart þar sem aðeins hefur sést til eins Java nashyrnings í Víetnam frá árinu 2008.

Samkvæmt upplýsingum frá dýraverndunarsamtökum er Java nashyrningurinn í mjög mikilli útrýmingarhættu. Hann er alveg horfinn úr náttúrinni í suðaustur Asíu og aðeins 50 dýr eru enn á lífi á Jövu og í Indónesíu.

Það er ásókn veiðiþjófa í horn nashyrningsins sem hefur valdið því að tegundin er að hverfa af yfirborði jarðar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×