Engar breytingar í vændum í Norður Kóreu 30. desember 2011 10:07 Kim Jong-un, hinn nýi „leiðtogi ríkisins, flokksins og hersins“ í Norður Kóreu. Mynd/AFP
Heimsbyggðin skal ekki búast við því að breytinga sé að vænta í Norður Kóreu þrátt fyrir fráfall leiðtogans Kim Jon Il og komu sonar hans Kim Jong Un á stóra sviðið. Þetta segir í skeyti sem flutt var í ríkisfjölmiðlum landsins í nótt og talið er skrifað í umboði Varnarmálaefndarinnar þar í landi, sem ku vera eitt valdamesta stjórnsýslubákn landsins. „Hinir heimskulegu leiðtogar heimsins, þar með talið leiksopparnir í Suður-Kóreu, ættu ekki að búast við neinum breytingum frá Norður Kóreu í bráð," segir í yfirlýsingunni. Norður Kórea hefur uppá síðkastið rekið mjög óvinsæla kjarnorkustefnu. Sex ríkja samningaviðræður sem miðuðu að því að stöðva þá stefnu sigldu í strand fyrir nokkrum mánuðum síðan. Meðal ríkja sem komu að viðræðunum voru Bandaríkin og Suður Kórea. Þau gerðu að skilyrði fyrir neyðar- og efnahagsaðstoð við Norður-Kóreu að landið breytti kjarnorkustefnu sinni. Norður-Kórea er eitt fátækasta ríki heims og hefur því brýna þörf fyrir neyðaraðstoð. Þetta skilyrði hefur valdið mikilli reiði ráðamanna í Norður Kóreu, en þeir eru þó ekki tilbúnir til að láta af kjarnorkuvopnum sínum, eins og nú liggur enn ljósar fyrir.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira