Messan: Eiður Smári ræðir um framtíðina og íslenska landsliðið 28. desember 2011 15:30
Eiður Smári Guðjohnsen var gestur í Sunnudagsmessunni á Stöð 2 sport 2 í gærkvöld og þar ræddi knattspyrnumaðurinn um framtíðaráform sín. Eiður er að jafna sig eftir fótbrot sem hann varð fyrir í leik með gríska liðinu AEK um miðjan október s.l. en hann gerði samning til tveggja ára við AEK s.l. sumar. „Í rauninni fer þetta allt eftir meiðslunum og hve fljótur ég verð að jafna mig. Þetta lítur allt vel út og ég er bjartsýnn. Ég þarf að bíta á jaxlinn, sýna þolinmæði og leita innra með mér að ég ætli að koma sterkur til baka, njóta þess að spila fótbolta, snúa dæminu við. Undanfarin ár hafa ekki verið mín bestu ár í fótboltanum og ég ætla að enda þetta á jákvæðum nótum." Guðmundur Benediktsson spurði Eið hvort að tíminn hafi ekki verið erfiður að undanförnu eftir alla velgengnina hjá Chelsea og Barcelona. Þar kom andlegi þátturinn inn í umræðuna. „Ég er ennþá léttur," svaraði Eiður Smári og brosti. „Þetta er bara reynsla, og gefur manni kjaftshögg að ég er ekki alveg tilbúinn að hætta á þessum nótum. Það hjálpar mér í þessum meiðslum að koma sterkari til baka." Eiður var einnig inntur eftir landsliðsmálunum en Lars Lågerbäck tók nýverið við landsliðsþjálfarastarfinu. „Ég hef alltaf sagt það að ef landsliðsþjálfarinn velur mig þá spila ég með landsliðinu. Ég verð kannski eitthvað aftar á vellinum en áður, en á meðan ég er valinn kem ég glaður í landsleiki," sagði Eiður en hann hefur verið í samskiptum við landsliðsþjálfarann í gegnum tölvupósta. „Hann skrifar fína ensku og ég fann engar stafsetningavillur," sagði Eiður en hann er ánægður með ráðninguna. „Ég held að það sé bara jákvætt fyrir okkur Íslendinga að breyta til og öðlast öðruvísi reynslu og vonandi að uppskeran verði eftir því," sagði Eiður Smári.
Fótbolti Mest lesið Ólýsanleg sorg fyrirliðans Fótbolti Svíar áttu ekki roð í þá frönsku Fótbolti Deschamps djúpt snortinn eftir fögnuð stórstjörnunnar Fótbolti Fjögurra áratuga bið á enda hjá Mexíkóum Fótbolti Vonarstjarna Börsunga seld til Frakklands Fótbolti Verður áfram í Þýskalandi Fótbolti Heimsmeistari hleypur Laugaveginn Sport Tugir þúsunda ærðust á Ullevaal Fótbolti Kona fótboltamanns fórnaði lífi sínu til að bjarga eins árs dóttur þeirra Fótbolti Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Sjá meira