Stuðningsmenn Leeds minntust Gary Speed í kvöld Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. nóvember 2011 23:45
Leeds heiðraði minningu Gary Speed í kvöld með því að vinna 4-0 sigur á Nottingham Forest í ensku B-deildinni. Stuðningsmenn liðsins sungu í ellefu mínútur samfellt um Speed. Ákveðið var fyrir leikinn að á elleftu mínútu myndu stuðningsmenn Leeds hefja ellefu mínútna samfelldan söng til heiðurs Speed, sem fannst látinn á heimili sínu um helgina aðeins 42 ára gamall. Speed klæddist treyju númer ellefu þegar hann spilaði með Leeds á sínum tíma. Það var viðeigandi að Leeds skoraði fyrsta mark leiksins þegar stuðningsmennirnir voru um það bil að ljúka sér af. Hér fyrir ofan má sjá myndband sem áhorfandi tók á vellinum í kvöld. Speed hóf ferilinn hjá Leeds sem unglingur árið 1988 og varð meistari með liðinu árið 1992. Hann lék alls 312 leiki með félaginu og skoraði í þeim 57 mörk. Knattspyrnustjóri Leeds er Simon Grayson en þeir gengu til liðs við Leeds á sama degi þegar þeir voru fjórtán ára gamlir. Hann bað sína leikmenn um að vinna leikinn fyrir Speed, sem og þeir gerðu. Speed lék einnig með Everton, Newcastle, Bolton og Sheffield United á ferlinum og varð fyrsti leikmaðurinn til að spila 500 leiki í ensku úrvalsdeildinni. Þeir urðu á endanum 535 talsins. Hann starfaði síðast sem landsliðsþjálfari Wales.
Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Íslenski boltinn Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Íslenski boltinn Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira