Ótrúlegur sigur hjá Blackburn - Sturridge tryggði Chelsea sigur 26. október 2011 21:39 Yohan Cabaye fagnar marki sínu í kvöld.
Blackburn og Chelsea komust í kvöld áfram í enska deildarbikarnum en báðir leikir voru framlengdir. Gríðarleg dramatík var í leik Blackburn og Newcastle. Menn voru ekki alveg á skotskónum í leik Everton og Chelsea. Nicolas Anelka byrjaði á því að misnota vítaspyrnu á 16. mínútu en Salomom Kalou bætti fyrir það með því að koma Chelsea yfir fyrir hlé. Everton fékk úrvalsfæri til þess að jafna hálftíma fyrir leikslok er komið var að þeim að fá víti. Leighton Baines ákvað þó að herma eftir Anelka og klúðra vítinu. Það kom þó ekki að sök því Louis Saha tókst að jafna metin er átta mínútur lifðu leiks. Áður hafði Chelsea misst Roos Turnbull af velli með rautt spjald. Það varð að framlengja. Eftir aðeins sex mínútur af framlengingunni var orðið jafnt í liðum er Royston Drenthe fékk rautt. Það nýtti Chelsea sér í botn og Daniel Sturridge skoraði sigurmarkið er fimm mínútur voru eftir af framlengingunni. Ruben Rochina kom Blackburn yfir eftir fimm mínútna leik gegn Newcastle og Yakubu bætti öðru marki við úr víti á 63. mínútu. Lokasprettur Newcastle var ótrúlegur. Danny Guthrie minnkaði muninn á 93. mínútu og Yohan Cabaye jafnaði leikinn er sex mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Þó svo leikmenn Blackburn hafi verið slegnir þá náði Morten Gamst Pedersen að koma þeim aftur yfir á 98. mínútu. Peter Lovenkrands jafnaði aftur fyrir Newcastle úr víti á 105. mínútu og það var vel við hæfi að þessi brjálaði leikur skildi klárast með sigurmarki á lokamínútunni. Það mark skoraði Gael Givet fyrir Blackburn.Úrslitin:Blackburn-Newcastle 4-3 1-0 Ruben Rochina (5.), 2-0 Yakubu Aiyegbeni, víti (63.)., 2-1 Danny Guthire (90.+3), 2-2 Yohan Cabaye (90.+6), 3-2 Morten Gamst Pedersen (98.), 3-3 Peter Lovenkrands, víti (105.), 4-3 Gael Givet (120.).Everton-Chelsea 1-2 0-1 Salomon Kalou (37.), 1-1 Louis Saha (82.), 1-2 Daniel Sturridge (115.)
Enski boltinn Mest lesið Verður Aron þjálfari FH? Handbolti Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Enski boltinn Ef ég væri að spila gegn Liverpool myndi ég trúa á sigur Íslenski boltinn Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Íslenski boltinn Öflug sveit á Norðurlandamótið Sport Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi Íslenski boltinn Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Enski boltinn Enn er Rosenborg í veseni Fótbolti Haukar ósigraðir á toppnum Íslenski boltinn Danskur skúrkur og Wolfsburg fallið í fyrsta sinn í 30 ár Fótbolti Fleiri fréttir Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Harðorð skýrsla og allt í skrúfunni hjá Southampton Slot tjáði sig loks eftir árás Salah Fyrirliðinn víðsfjarri þegar Tottenham gæti fallið Englandsmeistaraklipping á Selfossi: „Dásamlegir tímar“ Liverpool gæti komið Brighton í Meistaradeild Evrópu Steve McClaren til Rotherham Arsenal í skrúðgöngu daginn eftir úrslitaleikinn Hefnist fyrir klúðrið á Old Trafford Fögnuðu fram á morgun: „Þeir hlæja ekki lengur“ Sjáðu mörkin: Titilvonir City urðu að engu og falldraugir vofir yfir Tottenham Sjáðu Englandsmeistara Arsenal tryllast af fögnuði Sjá meira