Erlent

Madoff hjónin reyndu að fremja sjálfsmorð

Ruth Madoff eiginkona Bernie Madoff eins þekktasta fjársvikara sögunnar segir að þau hjónin hafi reynt sjálfsmorð um jólin í fyrra.

Þetta kemur fram í viðtali við Ruth sem birt verður í þættinum 60 Minutes á sunnudag. Bernie Madoff situr nú í ævilöngu fangelsi fyrir fjársvik upp á 50 milljarða dollara.

Ruth segir að þau hjónin hafi reynt sjálfsmorð með því að taka of stóran skammt af svefnpillum en það mistókst. Ástæðan fyrir sjálfsmorðstilrauninni var að þau hjónin voru orðin mjög þunglynd yfir öllum þeim hatursfullu símtölum og tölvupósti sem þeim bárust á þessum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×