Erlent

Dani fékk hálfan milljarð í lottóvinning

Þótt ofurvinningurinn hafi ekki gengið út í Víkingalottóinu í gærkvöldi er þó einn Dani sem hefur ástæðu til að brosa i dag. Hann fékk ofurvinninginn í jókernum og er í dag 24 milljónum danskra króna, eða um hálfum milljarði króna ríkari en í gær.

Tveir Norðmenn deildu með sér fyrsta vinningi og fengu 3,5 milljónir danskra króna hver í sinn hlut. Reiknað er með að ofurpotturinn verði yfir 2 milljarðar króna að stærð í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×