Enski boltinn

Man City á toppinn eftir sigur á Everton

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Balotelli skorar fyrra mark City í dag.
Balotelli skorar fyrra mark City í dag. Nordic Photos / Getty
Manchester City skaust á topp ensku úrvalsdeildarinnar með 2-0 sigri á Everton í hádegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni. City var mun sterkari aðilinn í leiknum og tókst að knýja fram sigur með mörkum frá Mario Balotelli og James Milner í síðari hálfleik.

Mario Balotelli kom City yfir á 68. mínútu með skoti utan teigs eftir undirbúning Argentínumannsins Sergio Aguero. Aguero hefur farið á kostum í upphafi tímabilsins og í raun frétt að hann hafi ekki skorað í leiknum í dag.

David Silva átti svo heiðurinn að seinna markinu. Everton tapaði þá boltanum á slæmum stað, Silva sendi hárnákvæma sendingu inn fyrir vörn Everton á James Milner sem kláraði færið vel.

City er komið á topp deildarinnar en það gæti þó breyst síðar í dag. Þá sækja nágrannar þeirra United liðsmenn Stoke heim á Britannia völlinn og geta endurheimt toppsætið nái þeir í stig.

Hér fyrir neðan birtast sjálfkrafa allar helstu upplýsingar um framvindu leiksins sem og leikmannahópa liðanna.



Staðan í ensku úrvalsdeildinni.









Fleiri fréttir

Sjá meira


×