Eyðir 3.500 óbirtum leyniskjölum 22. ágúst 2011 16:54 Julian Assange birti grein á heimasíðu sinni þar sem hann gagnrýnir Domscheit-Berg mjög. Mynd/AP
Fyrrverandi starfsmaður Wikileaks, Daniel Domscheit-Berg, hefur eytt 3.500 leyniskjölum sem lekið var til síðunnar Wikileaks. Þetta sagði hann í samtali við þýska fjölmiðilinn Der Spiegel, en skjölin munu m. a. hafa innihaldið 5 gígabæt af upplýsingum um Bank of America. Domscheit-Berg kveðst hafa eytt skjölunum til að vernda heimildamenn, sem oft hafa hætt lífi sínu til að safna gögnunum og senda á Wikileaks. Í tilkynningu sem birtist á heimasíðu Wikileaks síðastliðinn laugardag og virtist skrifuð af Julian Assange kom hins vegar fram að stefna síðunnar væri að varðveita ekki upplýsingar um heimildarmenn. Því væru í þessu tilviki engar slíkar upplýsingar í hættu. Í tilkynningunni sagði einnig að skjölin væru einstök og innihéldu mikilvægar upplýsingar sem vörðuðu mannréttindabrot, símahleranir, ný-nasista og fleira. Domscheit-Berg var helsti samstarfsmaður Assange allt þar til hann yfirgaf Wikileaks í september á síðasta ári vegna persónulegra árekstra þeirra félaga. Þá hafði hann með sér þessi gögn. Aukinheldur hafði hann með sér upplýsingar um tölvukerfi og varnarmál Wikileaks, sem leiddi til þess að Wikileaks hefur ekki getað tekið á móti gögnum undanfarið. Frá upphafi árs hefur Julian Assange kallað eftir birtingu þessara gagna, sem Domscheit-Berg hefur nú eytt fyrir fullt og allt.
Mest lesið Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Sundlaugargestur handtekinn Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Innlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Innlent „Það bjó enginn í húsinu“ Innlent „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Innlent Fleiri fréttir Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sjá meira