Enn logar London - óöldin breiðist út 9. ágúst 2011 08:12
Þriðju nóttina í röð loguðu eldar í Lundúnum og heimili og fyrirtæki voru eyðilögð í mestu óeirðum í borginni í áraraðir. Óöldin virðist vera að breiðast út um landið því í nótt kom einnig til átaka á milli lögreglu og óeirðaseggja í Birmingham, Bristol og í Liverpool, auk Lundúna. Tæplega fjögurhundruð hafa verið handteknir frá því ólætin hófust síðastliðið laugardagskvöld og í nótt voru þrír handteknir í London grunaðir um að hafa reynt að myrða lögreglumenn en ekið var á mennina á fullri ferð. David Cameron forsætisráðherra hefur setið undir gagnrýni sökum þess að hann hefur verið í fríi á Ítalíu á meðan óöldin hefur geisað en hann er nú á leið heim til þess að funda um næstu skref í baráttunni við óeirðaseggina sem hafa kveikt í verslunum og fyrirtækjum og farið um rænandi og ruplandi. Í gær var hundrað ára gömul húsgagnaverslun sem verið hefur í eigu sömu fjölskyldunnar í fimm ættliði brennd til grunna. Lögreglan hefur þurft að notast við brynvarða bíla til þess að hemja lýðinn en um sautján hundruð lögreglumenn hafa staðið vaktina í London síðustu daga. Tveimur fótboltaleikjum sem fara áttu fram í borginni í dag hefur verið frestað og svo gæti farið að vináttulandsleik Englendinga gegn Hollendingum á morgun verði einnig frestað.Á þessu korti má sjá hvar átök hafa blossað upp í höfuðborginni.
Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Innlent Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Erlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Vill afnema sektir við vændiskaupum Innlent Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu Innlent Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Innlent Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Innlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Fleiri fréttir Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Sprengja sprakk við hótel Macron í Damaskus Meta hvort hefja eigi réttarhöld yfir meintum morðingja Kirk Ákærð fyrir að kæfa börn sín sem hún sagði hafa látist af völdum bólusetningar Hamas byrjar að sleppa tökunum á Gasa Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Fimmtán látnir í aurskriðum og flóðum í Kína Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Úkraínumenn uppiskroppa með loftvarnarflugskeyti Rússar ógnuðu bresku herskipi sem siglir við Ísland Hvetur leiðtoga Nató til að taka afgerandi ákvarðanir Telja gestinn úr öðru sólkerfi mun eldri en sólin okkar Vilja nýja rannsókn á Farage vegna gjafa frá sakamanni Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Kínverjar gera tilraunir með langdræga eldflaug á Kyrrahafi Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Tíu látnir í árásum Rússa á Kænugarð Enn besta lausnin að kaupa Grænland Mætti ekki í útför föður síns Tugþúsundir mótmæltu í Tirana Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Sjá meira