Erlent

Ísbreiðan við Norðurskautið ekki verið minni síðan 1979

Ný mælingar á vegum bandarísku Haf- og veðurstofnunarinnar NOAA sýna að ísbreiðan við Norðurskautið hefur ekki verið minni síðan mælingarnar á henni hófust árið 1979.

Norðurskautsísinn þekur nú 10,9 milljón ferkílómetrasvæði og er það 10.6% minni útbreiðsla en nemur meðaltalinu á stærð hans á tímablinu frá 1979 til ársins 2000.

Árið í ár er það nítjánda í röðinni þar sem Norðurskautsísinn minnkar í júní að því er segir í umfjöllun um málið á heimasíðu NOAA. Þetta rímar við nýjar tölur um hitastig í heiminum sem einnig eru birtar á heimasíðunni.

Samkvæmt þeim var júnímánuður sá heitasti í heiminum frá því að mælingar á hitastiginu hófust á heimvísu árið 1880. Meðalhitinn í heiminum reyndist 16,2 gráður á celsíus í júní en til samanburðar má nefna að meðalhitinn í júní á síðustu öld var 15,5 gráður.

Fram kemur að hitinn var yfir meðallaginu í Perú, mið og austanverðri Norður Ameríku og í austur og vesturhlutum Asíu. Hinsvegar var hitinn undir meðallaginu á Norðurlöndunum, suðurhluta Kína og norðvesturhluta Bandaríkjanna svo dæmi séu tekin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×