Enski boltinn

Styttist í úrslitastundu hjá Portsmouth - frestur til mánudags

Ómar Þorgeirsson skrifar
Peter Storrie, stjórnarformaður Portsmouth.
Peter Storrie, stjórnarformaður Portsmouth. Nordic photos/AFP

Enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth stendur nú í ströngu í leit sinni að nýjum fjárfestum til þess að hjálpa liðinu upp úr þeirri skuldasúpu sem gæti að öllu óbreyttu leitt til þess að félagið endi í greiðsluþroti og verði dæmt niður um deild.

Eigandinn Balram Chainrai og stjórnarformaðurinn Peter Storrie hafa verið að funda með áhugasömum aðilum síðustu daga en þeir eru í kapphlaupi við tímann til þess að finna nýja fjárfesta þar sem félagið þarf að greiða ógreidda skatta ekki seinna en á mánudag.

„Við höfum frest fram á mánudag þannig að við vonumst til þess að fá nýja fjárfesta inn í félagið ekki seinna en um næstu helgi. Við erum að ræða við þrjá aðila eins og er og við erum að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að ganga frá þessu sem fyrst," sagði talsmaður Chainrai í viðtali við Sky Sports fréttastofuna í dag.

Fyrir utan ógreidda skatta og önnur gjöld upp á um 12 milljónir punda þá skuldar félagið einnig fyrrum eigandanum Alexandre Gaydamak í kringum 30 milljónir punda en félagið bað nýlega um sérstakt leyfi til þess að selja leikmenn sína þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn á Englandi sé lokaður.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×