Enski boltinn

Grant: Það getur enginn drepið andann hjá okkur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Avram Grant, knattspyrnustjóri Portsmouth, var himinlifandi eftir að strákarnir hans tryggðu sér sæti í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar í dag.

Hann hrósaði sérstaklega þeim góða anda sem fylgir liðinu og stuðningsmönnum þess þó félagið sé ein rjúkandi rúst og hafi átt fjóra eigendur á tímabilinu.

„Fótbolti er svo sannarlega meira en fótbolti. Allt þetta fólk er svo ánægt. Það er hægt að drepa margt en það er ekki hægt að drepa andann hjá leikmönnum og stuðningsmönnum liðsins. Það héldu kannski margir að við myndum brotna en það mun ekkert drepa andann hjá okkur," sagði Grant skælbrosandi.

„Maður fyllist stolti þegar maður sér eldri leikmenn eins og Hermann Hreiðarsson og David James gefa hjarta sitt til liðsins. Þetta er það sem skiptir máli fyrir andann í boltanum.

Portsmouth fékk 600 þúsund pund fyrir sigurinn í dag og veitir svo sannarlega ekki af.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×