Landamærin að Gasa verði opnuð alveg 19. júlí 2010 06:00 Ashton skoðaði nokkur fyrirtæki á Gasasvæðinu í heimsókn sinni í gær. Meðal annars fór hún um steypuverksmiðju sem er lokuð vegna einangrunar Ísraelsmanna. fréttablaðið/ap
Utanríkismálafulltrúi Evrópusambandsins, Catherine Ashton, hvetur Ísraela til að opna landamærin að Gasasvæðinu algjörlega. Hún heimsótti svæðið í gær og ræddi meðal annars við fólk um það hvort líf þeirra hefði breyst eftir að einangruninni á svæðinu var aflétt að hluta fyrr í mánuðinum. „Afstaða Evrópusambandsins er mjög skýr. Við viljum að fólk geti ferðast um, og við viljum ekki aðeins innflutning til Gasa heldur einnig sjá vörur fluttar frá Gasa,“ sagði hún. Hún skoðaði fyrirtæki á svæðinu og ræddi við fólk þar. Tilkynnt hefur verið að Evrópusambandið hyggist veita um 900 fyrirtækjum á Gasasvæðinu styrk til þess að koma undir sig fótunum á nýjan leik, en aðeins um 30 prósent verksmiðja á svæðinu eru starfandi nú. Sökum vöruskorts hafa fyrirtæki mörg hver þurft að loka. Aðeins er búist við því að þeim fjölgi um nokkur hundruð nú, þar sem enn má ekki flytja inn ýmisleg efni sem nauðsynleg eru til framleiðslu. Ashton heimsótti meðal annars Megapharm, sem er meðal fyrirtækjanna sem fá styrk á næstunni. Fyrirtækið er meðal 203 fyrirtækja sem skipta á milli sín tæplega milljónum evra. Það hefur komið framleiðslu sinni í um 50 prósent af því sem áður var, en getur aðeins framleitt vörur fyrir Gasasvæðið þar sem ekki má flytja neitt út af svæðinu. Ashton fundaði ekki með stjórnvöldum á Gasa þar sem Evrópusambandið viðurkennir ekki Hamas-samtökin sem þar stjórna. Hún fundaði hins vegar með ísraelskum yfirvöldum. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Fleiri fréttir Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Sjá meira