Leikir dagsins í enska boltanum: Öll toppliðin að spila Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2010 12:15 Everton vann Chelsea á dögunum en í dag mæta þeir hinu toppliðinu í Manchester United. Mynd/AFP
Það fara fimm leikir fram í ensku úrvalsdeildinni í dag og öll þrjú efstu liðin eru að spila. Efstu tvö liðin, Chelsea og Manchester United, eiga bæði útileiki en Arsenal sem er í 3. sæti er á heimavelli á móti Sunderland.Everton-Man Utd (Klukkan 12.45) Manchester United getur náð efsta sætinu með sigri og sett pressu á Chelsea sem spilar seinna í dag. United er taplaust í síðustu átta leikjum og hefur náð í 20 stig af síðustu 24 mögulegum. Eveton hefur einnig verið að spila vel en liðið hefur unnið 4 af síðustu fimm leikjum og þar á meðal 2-1 sigur á Chelsea á dögunum. Everton hefur ekki náð að vinna Manchester United í síðustu níu innbyrðisleikjum liðanna.Arsenal-Sunderland (Klukkan 15.00) Sunderland hefur aldrei unnið útileik á móti Arsenal því liðið hefur tapað sex leikjum og gert tvö jafntefli í átta heimsóknum. Sunderland vann samt fyrri leik liðanna á tímabilinu 1-0 og hefur ekki tapað í síðustu þremur innbyrðisleikjum liðanna. Sunderland hefur hinsvegar ekki unnið deildarleik síðan að liðið vann Arsenal því liðið hefur síðan gert 6 jafntefli og tapað 6 sinnum í tólf deildarleikjum. Arsenal tapaði fyrir Porto í Meistaradeildinni í vikunni en "Skytturnar" hafa aðeins skorað 2 mörk í síðustu fjórum leikjum.West Ham-Hull (Klukkan 15.00) Þetta er sex stiga leikur í fallbaráttunni en bæði lið eru með 24 stig og aðeins einu stigi frá fallsæti. Hull hefur aðeins unnið 1 af síðustu 12 deildarleikjum sínum en West Ham hefur ekki gengið mikið betur með 1 sigur í síðustu 6 leikjum. West Ham er samt tveimur sætum ofar aðeins þökk sé betri markatölu. Hull hefur ekki unnið á Upton Park síðan í janúar 1990.Wolves-Chelsea (Klukkan 15.00) Chelsea hefur unnið þrjá síðustu deildarleiki sína á móti Wolves og skorað í þeim fjórtán mörk. Chelsea tapaði síðasta deildarleik sínum á móti Everton og ef að liðið tapar í dag væri það í fyrsta sinn í 141 leik þar sem liðið tapar tveimur deildarleikjum í röð. Wolves hefur aðeins unnið einn af síðustu fjórum leikjum og liðið er aðeins einu stigi frá fallsæti. Chelsea vann fyrri leik liðanna í vetur 4-0 þar sem Michael Essien skoraði tvö mörk og þeir Florent Malouda og Joe Cole voru með eitt mark hvor.Portsmouth-Stoke (Klukkan 17.30) Portsmouth hefur ekki unnið í síðustu sjö deildarleikjum og sitja á botni deildarinnar átta stigum á eftir næsta liði. Stoke-liðið hefur spilað vel að undanförnu og hefur ekki tapað í síðustu sex leikjum. Stoke hefur aftur á móti ekki tekist að vinna í síðustu fimm heimsóknum sínum á Fratton Park. Portsmouth vann 4-0 sigur á Stoke í deildarbikarnum fyrr á tímabilinu en Richard Fuller tryggði Stoke 1-0 sigur í fyrri deildarleik liðanna.
Mest lesið Fyrirliði Bandaríkjanna ver gjammandi stuðningsmennina Golf Uppgjörið: Vestri - ÍBV 0-5 | Enn syrtir í álinn hjá Vestra Íslenski boltinn „Hvernig stendur á því að hann er enn í starfi?“ Enski boltinn Sagði áhorfanda að naglhalda kjafti Golf Grínisti hættir og biðst afsökunar á að hafa byrjað níðsöngva í garð Rory Golf Nik hættir með Breiðablik og tekur við Kristianstad Íslenski boltinn Slot varpaði sökinni á Frimpong Enski boltinn Í beinni: Newcastle - Arsenal | Skytturnar mæta á St James' Park Enski boltinn Aðeins sá sjötti til að skora tvö sjálfmörk í einum leik Fótbolti Í beinni: Afturelding - KA | Langt frá síðasta sigri Mosfellinga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Newcastle - Arsenal | Skytturnar mæta á St James' Park Villa kláraði dæmið í byrjun seinni hálfleiks „Hvernig stendur á því að hann er enn í starfi?“ Slot varpaði sökinni á Frimpong Sjáðu allt það helsta úr enska boltanum í gær Fyrsta stig Úlfanna í hús Tvö sjálfsmörk og tvö frá Haaland í sigri City Amorim svekktur: „Þetta er mjög sárt“ Nuno tekinn við West Ham Palace eina ósigraða liðið eftir dísætan sigur á Liverpool Skoruðu þrjú manni fleiri gegn Chelsea Fernandes klikkaði á víti og United tapaði fyrir Brentford Nuno að taka við West Ham Potter rekinn frá West Ham Ekitike var ekki sektaður: „Það má gera mistök hjá þessu félagi“ Palmer frá næstu þrjár vikurnar Flottustu mörkin hjá Newcastle og Arsenal: Snilld Bergkamps og þrumufleygur Tiotés Man. Utd tryggir sér aftur táning frá S-Ameríku en fær hann ekki strax Látinn eftir höfuðhögg í leik Hvenær fær Lammens sénsinn hjá Man. Utd? Mun skrifa undir nýjan fimm ára samning við Arsenal Kristófer djarfur í Fantasy: Tuttugu mínusstig í síðustu tveimur umferðum „Ég væri dáinn ef hún væri ekki hér“ Synir Emile Heskey spiluðu saman í fyrsta sinn fyrir City Velskur slagur og meistarar mætast í sextán liða úrslitum Eze með fyrsta markið fyrir Arsenal Hjólhestur hjá Palhinha og markaveisla hjá Skjórunum Segir að Wirtz væri betur borgið hjá Bayern en Liverpool Ragnar er fyrir ofan bankastjórann í Fantasy-deild Kaupþings Ömurlegar fréttir fyrir unga Liverpool-nýliðann Sjá meira