Enski boltinn

Evra gripinn við framhjáhald

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Nordic Photos/Getty Images

Enska slúðurblaðið The Sun heldur áfram að gera knattspyrnumönnum þar í landi lífið leitt með því að fletta ofan af framhjáhöldum þeirra.

Í dag var komið að Patrice Evra, varnarmanni Man. Utd. Slúðurblaðið komst yfir myndir úr öryggismyndavélum á hóteli þar sem hann tékkaði sig inn um miðja nótt með ónafngreindri ljósku.

Konan er þó ekki eiginkona Evra. Þau sjást kyssast á einni myndinni. Konan greiddi fyrir hótelherbergið og Evra kom síðar inn á hótelið, með hettu yfir hausnum og augljóslega að reyna að fela sig.

Hægt er að sjá myndirnar af Evra og leyndardómsfullu konunni á vef The Sun hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×