Enski boltinn

Sol Campbell: Við áttum sigurinn skilinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sol Campbell.
Sol Campbell. Mynd/Getty Images
Sol Campbell var sáttur með sigurinn á Hull í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en Nicklas Bendtner skoraði sigurmark liðsins í uppbótartíma.

„Við áttum sigurinn skilinn. Við héldum alltaf áfram, spiluðum flottan fótbolta og sköpuðum góð færi. Þetta réðst síðan á því að Nicklas náði að koma einum bolta í netið í lokin," sagði Sol Campbell, varnamaður Arsenal.

„Þetta var jafn leikur en aðalatriðið var að við náðum að vinna þennan leik," sagði Sol Campbell sem fékk dæmt á sig víti í leiknum.

„Hann var rangstæður og síðan var hann ekki með full vald á boltanum þegar við rákumst saman," sagði Sol Campbell sem braut þá á Jan Vennegoor of Hesselink.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×