Enski boltinn

Gerrard sýndi dómaranum puttana og gæti verið í vandræðum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool.
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool. Mynd/AP
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, var orðinn mjög pirraður þegar hann fékk gula spjaldið á 81. mínútu í 0-1 tapi á móti Wigan í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Gerrard sýndi dómaranum Andre Marriner tvo putta um leið og hann gekk framhjá honum auk þess að hann virtist hrauna yfir hann blótsyrðum líka ef marka má sjónvarpsupptökuna af atvikinu.

Marriner tók ekki eftir v-merki Steven Gerrard en aganefnd enska knattspyrnusambandsins gæti vissulega tekið málið fyrir og dæmt Gerrard í leikbann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×