Erlent

Sautján látnir í Tehran - Átök brutust út í kvöld

Mótmæli.
Mótmæli.

Mótmælendum og írönsku óeirðarlögreglunni hefur lent saman samkvæmt óstaðfestum fregnum á BBC. Aðeins nokkur hundruðir mótmælanda voru í höfuðborg Írans, Tehran, í dag.

Samkvæmt sjónarvotti sem BBC ræddi við þá áttu sér stað átök nærri þinghúsinu í Tehran.

Talið er að sautján manns hafi fallið í átökum lögreglu og mótmælanda undanfarna daga. Þrátt fyrir óeirðarástand segist Ayatollah Ali Khameini að úrslit forsetakosninganna muni standa þrátt fyrir að þau hafi verið véfengd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×