Erlent

Útsendarar 202 og 123 handteknir

Fidel Castro í stanslausu stríði við kapitalistanna.
Fidel Castro í stanslausu stríði við kapitalistanna.

Njósnarnir Walter Kendall Myers og eiginkona hans, Gwendolyn Steingraber Myers, hafa verið handtekinn og ákærð fyrir njósnir í Bandaríkjunum.

Þau eru sökuð um að hafa njósnað fyrir kúbversk yfirvöld í Bandaríkjunum síðan árið 1979. Bæði eru þau á áttræðisaldri.

Walter hafði unnið fyrir utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna og var með aðgang að mörgum leynilegum upplýsingum samkvæmt FOX fréttastofunni.

Talið er að kúbverskur útsendari hafi nálgast þau árið 1979 þegar þau bjuggu í Norður-Dakóta. Walter var þá ráðlagt að sækja um starf hjá CIA sem og hann gerði.

Hann fékk ekki vinnuna en komst þess í stað að hjá utanríkisráðuneytinu. Hann sérhæfði sig þar í málefnum Evrópu og tengslum utanríkisráðuneytis við löndin í þeirri álfu.

Það var ekki fyrr en útendari FBI kom sér í samband við þau og þóttist sjálfur vera njósnari frá Kúbu sem upp um þau komst. Þá kom jafnframt í ljós að þau höfðu komið skilaboðum til Kúbu í gegnum morskóða.

Talið er að þau hafi hitt Kastró sjálfan árið 1995. Þá fóru þau í gegnum Mexíkó og þaðan til Kúbu. Þau ferðuðust undir dulnefnum.

Kúbverska leyniþjónustan þekkti þau undir dulnefnunum útsendarar 202, sem var Walter og svo útsendari 123 sem var kona hans Gwendolyn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×