Erlent

NATO fordæmir hryðjuverkin í Írak

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Anders Fogh Rasmussen fordæmir hryðjuverkin. Mynd/ AFP.
Anders Fogh Rasmussen fordæmir hryðjuverkin. Mynd/ AFP.
NATO fordæmir hryðjuverkatilræðin í höfuðborg Íraks, segir Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér undir kvöld. Hann segir segir sprengingarnar vera forkastanlegar.

„Fyrir hönd NATO fordæmi ég harðlega sprengjuárásirnar sem áttu sér stað í Bagdad og kostuðu fjölda saklausra borgara lífið," sagði Anders Fogh Rasmussen í yfirlýsingunni.

Sprengingarnar kostu hátt á annað hundrað manns lífið og 700 eru særðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×