Tími skattaskjóla og bankaleyndar liðinn 3. apríl 2009 04:30 Barack Obama slær á létta strengi við kollega sína frá Ítalíu og Rússlandi, Silvio Berlusconi og Dmitry Medvedev. Á myndinni má einnig sjá Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta, Saud al-Faisal, utanríkisráðherra Sádi-Arabíu, Abhisit Vejjajiva, forsætisráðherra Taílands, Hu Jintao Kínaforseta, Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, og Meles Zenawi, forsætisráðherra Eþíópíu.Nordicphotos/afp
Leiðtogar svokallaðra G20-ríkja samþykktu á fundi sínum í London í gær að verja 1.100 milljörðum dollara, eða um 130 þúsund milljörðum króna, í aukin fjárframlög til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans. Fjármununum er ætlað að koma til aðstoðar þjóðum sem eru í kröggum vegna efnahagsástandsins í heiminum. Þá var ákveðið að ráðast í mikla herferð gegn skattaparadísum um heim allan. „Tími bankaleyndar er liðinn,“ sagði Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti að fundinum loknum. Þar var meðal annars ákveðið að búa til svartan lista yfir þau lönd sem skýla skattsvikurum og beita þau hörðum viðurlögum sem neita að taka upp nýjar alþjóðlegar reglur um gagnsæi á fjármálamörkuðum. Leiðtogarnir náðu einnig samkomulagi um að gera breytingar á hlutverki fjármálaráðs sem þegar situr. Það fær nú aukið eftirlitshlutverk og er gert að fylgjast með þróun efnahagslífs í heiminum og gera viðvart um öll aðsteðjandi vandamál. Sarkozy, ásamt öðrum leiðtogum Evrópuríkja, hafði talað fyrir því að ráðið yrði enn valdameira og fengi að ráðskast með regluverk aðildarríkja, þeirra á meðal Bandaríkjanna. Sú hugmynd hlaut ekki nægan hljómgrunn. Barack Obama Bandaríkjaforseti, sem á fundinum tekst á við sitt fyrsta stóra verkefni í utanríkismálum, fékk ekki heldur stuðning annarra ríkja við það að verja háum fjárhæðum í innspýtingar í hagkerfi til atvinnusköpunar eins og gert hefur verið í Bandaríkjunum og Bretlandi. Frakkar og Þjóðverjar mótmæltu hugmyndinni harðlega, en fyrir lá að hún nyti ekki víðtæks stuðnings utan Bretlands og Bandaríkjanna. Fundurinn þykir að öðru leyti hafa heppnast afar vel. „Við höfum stigið skref af áður óþekktri stærðargráðu í átt til endurreisnar og þess að fyrirbyggja að svona nokkuð hendi á ný,“ sagði Obama að fundinum loknum. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, tók í sama streng þegar hún kallaði niðurstöðuna „mjög, mjög góða, nánast sögulega málamiðlun“. Áfram var mótmælt í London í gær en mótmælin voru þó öllu rólegri en á miðvikudag, þegar einn mótmælandi lét lífið. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Innlent Engin byssa reyndist vera í bílnum Innlent „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Innlent Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Erlent Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Innlent Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Erlent 27 daga frostlausum kafla lokið Veður Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Erlent Hinn látni bandarískur ferðamaður á sextugsaldri Innlent Fleiri fréttir Talinn hafa unnið fyrir fjölmiðlateymi Hamas áður en stríðið hófst Fordæma „markviss“ dráp Ísraela á blaðamönnum á Gasa Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Ástralir hyggjast viðurkenna sjálfstæða Palestínu Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Sæti Artúrs logar Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti Stór skjálfti reið yfir í Tyrklandi Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Sjá meira