Erlent

Tími skattaskjóla og bankaleyndar liðinn

Barack Obama slær á létta strengi við kollega sína frá Ítalíu og Rússlandi, Silvio Berlusconi og Dmitry Medvedev. Á myndinni má einnig sjá Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta, Saud al-Faisal, utanríkisráðherra Sádi-Arabíu, Abhisit Vejjajiva, forsætisráðherra Taílands, Hu Jintao Kínaforseta, Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, og Meles Zenawi, forsætisráðherra Eþíópíu.Nordicphotos/afp
Barack Obama slær á létta strengi við kollega sína frá Ítalíu og Rússlandi, Silvio Berlusconi og Dmitry Medvedev. Á myndinni má einnig sjá Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta, Saud al-Faisal, utanríkisráðherra Sádi-Arabíu, Abhisit Vejjajiva, forsætisráðherra Taílands, Hu Jintao Kínaforseta, Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, og Meles Zenawi, forsætisráðherra Eþíópíu.Nordicphotos/afp

Leiðtogar svokallaðra G20-ríkja samþykktu á fundi sínum í London í gær að verja 1.100 milljörðum dollara, eða um 130 þúsund milljörðum króna, í aukin fjárframlög til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans. Fjármununum er ætlað að koma til aðstoðar þjóðum sem eru í kröggum vegna efnahagsástandsins í heiminum.

Þá var ákveðið að ráðast í mikla herferð gegn skattaparadísum um heim allan. „Tími bankaleyndar er liðinn,“ sagði Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti að fundinum loknum. Þar var meðal annars ákveðið að búa til svartan lista yfir þau lönd sem skýla skattsvikurum og beita þau hörðum viðurlögum sem neita að taka upp nýjar alþjóðlegar reglur um gagnsæi á fjármálamörkuðum.

Leiðtogarnir náðu einnig samkomulagi um að gera breytingar á hlutverki fjármálaráðs sem þegar situr. Það fær nú aukið eftirlitshlutverk og er gert að fylgjast með þróun efnahagslífs í heiminum og gera viðvart um öll aðsteðjandi vandamál.

Sarkozy, ásamt öðrum leiðtogum Evrópuríkja, hafði talað fyrir því að ráðið yrði enn valdameira og fengi að ráðskast með regluverk aðildarríkja, þeirra á meðal Bandaríkjanna. Sú hugmynd hlaut ekki nægan hljómgrunn.

Barack Obama Bandaríkjaforseti, sem á fundinum tekst á við sitt fyrsta stóra verkefni í utanríkismálum, fékk ekki heldur stuðning annarra ríkja við það að verja háum fjárhæðum í innspýtingar í hagkerfi til atvinnusköpunar eins og gert hefur verið í Bandaríkjunum og Bretlandi. Frakkar og Þjóðverjar mótmæltu hugmyndinni harðlega, en fyrir lá að hún nyti ekki víðtæks stuðnings utan Bretlands og Bandaríkjanna.

Fundurinn þykir að öðru leyti hafa heppnast afar vel. „Við höfum stigið skref af áður óþekktri stærðargráðu í átt til endurreisnar og þess að fyrirbyggja að svona nokkuð hendi á ný,“ sagði Obama að fundinum loknum. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, tók í sama streng þegar hún kallaði niðurstöðuna „mjög, mjög góða, nánast sögulega málamiðlun“.

Áfram var mótmælt í London í gær en mótmælin voru þó öllu rólegri en á miðvikudag, þegar einn mótmælandi lét lífið.

stigur@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×