Ánægðir með niðurstöðu leiðtogafundarins 2. apríl 2009 23:35 Leiðtogar 20 stærstu iðnvelda að fundi loknum í dag. MYND/AP
Leiðtogar 20 stærstu iðnvelda heims samþykktu í dag að koma efnahagskerfi heimsins aftur í gang með því að leggja í það eittþúsund milljarða dollara. Forystumenn Bandaríkjanna, Frakklands og Bretlands voru allir ánægðir að fundi loknum. Barack Obama, Bandaríkjaforseti, fagnaði samþykktinni og sagði um að tímamótasamning væri að ræða. Þúsund milljarðar dollara eru um eitthundrað og tuttugu þúsund milljarðar króna. Þessu fé á að koma inn í hagkerfi heimsins með aukafjárveitingum til alþjóðlegra stofnana eins og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í dag að sjóðurinn fengi fimmhundruð milljarða dollara aukafjárveitingu. Að auki fær hann 250 milljarða dollara til þess að örva viðskipti og aðra 250 milljarða dollara í sérstaka yfirdráttarheimild. Ríkisstjórnir víða um heim hafa þegar veitt hundruðum milljarða dollara í að koma hagkerfinu í gang. Það er farið að skila sér og vonast er til að þessi aðgerð ýti undir traust á markaðinum. Þá var ákveðið á fundinum að ráðast í aðgerðir gegn skattaparadísum. Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti sagði að tíma bankaleyndar væri liðinn. Þegar að Brown sleit fundinum sagði hann að niðurstaða leiðtoganna myndi leiða til þess að fjármálakreppan verði mun styttri en leit út fyrir.
Mest lesið Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Fleiri fréttir Seinfeld og Friends-leikari látinn Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Sjá meira