Erlent

Dómur í Pakistan: Eyra fyrir eyra og nef fyrir nef

Konur í Pakistan verða oft fyrir hryllilegum árásum. Mynd úr safni.
Konur í Pakistan verða oft fyrir hryllilegum árásum. Mynd úr safni.

Pakistanskur dómstóll í Lahore dæmdi tvo bræður til þess að hljóta heldur óvanalega refsingu á dögunum. Mennirnir rændu tvítugri frænku sinni, Fazeelat Bibi, og skáru af henni eyra og nef. Ástæðan var sú að fjölskylda stúlkunnar vildi ekki gifta hana öðrum bróðurnum.

Mennirnir voru dæmdir í ævilangt fangelsi. Að auki verður eyra þeirra og nef skorið af þeim. Refsingin er í samræmi við islamísk lög sem tóku gildi í Pakistan árið 1980.

Mannréttindasamtök í Pakistan fordæma ofbeldisverk gegn konum þar í landi en það er ekki óalgengt að karlmenn veiti þeim varanleg ör í andliti vilji þær ekki giftast þeim.

Aftur á móti fordæma samtökin svo harðar líkamlegar refsingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×