Fimmta jafntefli City í röð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. nóvember 2009 16:57 Carlos Tevez hefur ekki skorað í deildarleik síðan í september. Nordic Photos / Getty Images
Manchester City gerði sitt fimmta jafntefli í röð í ensku úrvalsdeildinni, að þessu sinni á heimavelli gegn Burnley, 3-3. Burnley komst reyndar 2-0 yfir í leiknum en City náði að komast 3-2 yfir snemma í síðari hálfleik. Heimamenn virtust vera með leikinn í höndum sér er varamaðurinn Kevin McDonald jafnaði metin undir lok leiksins með skoti af stuttu færi eftir laglega sókn. Jóhannes Karl Guðjónsson kom inn á sem varamaður í liði Burnley í síðari hálfleik. Grétar Rafn Steinsson kom einnig inn á sem varamaður í liði Bolton sem tapaði stórt fyrir Aston Villa á útivelli, 5-1. City datt niður í sjötta sæti deildarinnar þar sem að Tottenham og Aston Villa unnu sína leiki. Tottenham vann 2-0 sigur á Sunderland og er í fjórða sæti með 22 stig. Aston Villa er í fimmta sæti með 21 stig en City er með 20 stig. Darren Bent, sóknarmaður Sunderland, mætti í dag sínum gömlu félögum í Tottenham en hann misnotaði víti í leiknum þegar staðan var 1-0 fyrir Tottenham. Portsmouth er enn í neðsta sæti deildarinnar eftir að liðið tapaði fyrir Blackburn á útivelli, 3-1, eftir að hafa komist 1-0 yfir snemma í leiknum. Hermann Hreiðarsson lék ekki með Portsmouth vegna meiðsla.Manchester City - Burnley 3-3 0-1 Graham Alexander, víti (19.) 0-2 Steven Fletcher (32.) 1-2 Shaun Wright-Phillips (43.) 2-2 Kolo Toure (55.) 3-2 Craig Bellamy (58.) 3-3 Kevin McDonald (87.)Blackburn - Portsmouth 3-1 0-1 Jamie O'Hara (16.) 1-1 Jason Roberts (53.) 2-1 Ryan Nelsen (73.) 3-1 Jason Roberts (86.)Aston Villa - Bolton 5-1 1-0 Ashley Young (5.) 2-0 Gabriel Agbonlahor (43.) 2-1 Johan Elmander (45.) 3-1 John Carew (53.) 4-1 James Milner (72.) 5-1 Carlos Cuellar (76.)Tottenham - Sunderland 2-0 1-0 Robbie Keane (12.) 2-0 Tom Huddlestone (68.)
Mest lesið „Heyrðu, það þarf einhver að skutla syni okkar á leikskólann“ Sport Bakgarður 101: „Ætla að níðast á þessum líkama og sjá hvað hann getur“ Sport Setti heimsmet en þarf ekki Sveindís Jane að fá að reyna næst? Fótbolti „Einu skrefi nær því að verða næsti Sir Alex Ferguson“ Íslenski boltinn Sex rallýgoðsagnir teknar inn í nýjustu frægðarhöllina á Íslandi Sport Guðni Eiríksson: Markmannstaðan á Íslandi er ekki nógu góð Íslenski boltinn Arne Slot vonsvikinn með Trent Alexander-Arnold Enski boltinn Syni Tigers mistókst að tryggja sér sæti á Opna bandaríska Golf Fjögur lið á toppnum með fjögur stig Íslenski boltinn Dagskráin: Fer Íslandsmeistarbikarinn á loft í Njarðvík? Sport Fleiri fréttir Arteta varar Arsenal fólk við: Erfiðasta staðan að fylla Arne Slot vonsvikinn með Trent Alexander-Arnold Mac Allister besti leikmaðurinn í fyrsta sinn Salah valinn bestur af blaðamönnum Fótboltaparið eignaðist son og skírði hann Jagger Tilbúinn að gefa nýrun sín en ekki að leigja bílaleigubíl „Hverjum er ekki sama þó við séum í veseni í deildinni“ „Liðið ætti að vera betra en það er en við erum að reyna“ Sheffield United með gott forskot í umspili Championship Rio Ferdinand lagður inn á sjúkrahús Fagnaði í bol með fullt af myndum af sjálfum sér Gætu þurft að bíða í sautján ár eftir nýjum leikvangi Arteta skaut á Liverpool á fundi fyrir PSG leikinn Ráðherra bað stuðningsmenn Liverpool afsökunar Brasilíudvöl í kortunum hjá Jorginho Real Madrid vill fara í viðræður við Liverpool um Trent Mac Allister: Liverpool er bara rétt að byrja Aftur tapar Forest stigum í baráttunni um Meistaradeildarsæti „Gengur aldrei einn í Liverpool en kannski gerir þú það i Madrid“ María fagnaði sigri á Arsenal á sama degi og tilkynnt var um brottför hennar Amorim: Liðið ekki nógu gott til að vera í Meistaradeildinni Staðfestir brottför frá Liverpool Meistaraþynnka hjá Liverpool og Chelsea græddi mikilvæg stig Isak tryggði Skjórunum stig gegn Mávunum Sjö marka leikur í Lundúnum og enn eitt tap United Hamrarnir jöfnuðu gegn Spurs en biðin eftir sigri lengist enn Yngstur til að byrja leik fyrir United í ensku úrvalsdeildinni Leikmaður Palace vann tvær og hálfa milljón á skákmóti Ætla að nýta reiðina í Meistaradeildinni Kirsuberin komu til baka og stálu sigri af Skyttunum Sjá meira