Eignir Landsbankans ættu að vera fullnaðargreiðsla Heimir Már Pétursson skrifar 6. júní 2009 19:30
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að afhenda hefði átt Bretum og Hollendingum eignir Landsbankans sem fullnaðargreiðslu vegna Icesave skuldbindinganna. Formaður Framsóknarflokksins vonar að Alþingi hafni samkomulaginu. Bjarna Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins lýst illa á það samkomulag sem nú liggur fyrir. Ekki sé tekið nægjanlega tillit til aðstæðna á Íslandi eins og lagt hafi verið upp með þegar samningaviðræður hófust og eins og Alþingi hafi gengið út frá þegar það samþykkti að ríkisstjórnin gengi til samningaviðræðna vegna Icesave. Bjarni segir að þau drög sem lágu fyrir um samning við Breta í tíð ríkisstjórnar Geirs H. Haarde, hafi byggst á kröfum viðsemjenda sem aldrei hafi staðið til að fallast á. Hann hefði viljað að hámarks greiðslur Íslendinga vegna Icesave yrðu aldrei meira en sem næmu einu prósenti af landsframleiðslu á ári. Þá hefði hann viljað að eignir Landsbankans í Bretlandi og Hollandi hefðu verið afhentar sem fullnaðargreiðsla fyrir skuldbindingunum.Reyna hefði átt á lagalegan rétt Íslendinga Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins segir að sér lítist afleitlega á samningsniðurstöðuna. Hann hafi verið miður sín vegna þessa frá í gærmorgun. Nú sé að sjá hvað Alþingi geri og hann treysti því að þingið staðfesti ekki fjárveitingu vegna málsins. Þá segir Sigmundur að reyna hefði átt á lagalegan rétt Íslendinga sem væri sterkur í þessu máli. Þá væri pólitísk staða Íslendinga einnig sterk og samningsstaðan mun sterkari en þessi niðurstaða gefi til kynna.Málið verður keyrt í gegnum Alþingi með ofbeldi Þráinn Bertelsson þingmaður Borgarahreyfingarinnar segir niðurstöðuna hræðilega. Þetta sé sennilega stærsta fjárhagsskuldbinding í Íslandssögunni sem gengið sé frá í leyni. Síðan standi til að keyra málið í gegnum Alþingi með ofbeldi. Þráinn er sömu skoðunar og formaður Sjálfstæðisflokksins um að afhenda hefði á Bretum og Hollendingum eignir Landsbankans sem fullnaðargreiðslu. „Síðan hefði átt að bjóða þeim alla mögulega aðstoð yfirvalda og lögreglu hérna við að koma í hendur þeirra þeim glæpamönnum sem komu okkur í þessa aðstöðu til að byrja með," sagði Þráinn.
Tengdar fréttir Vildi peninga í skiptum fyrir þrjú stig í landsleiknum Stuðningsmenn hollenska landsliðsins í knattspyrnu hafa lífgað upp á miðbæ Reykjavíkur með skemmtilegum hætti í allan dag en landsleikur Íslands og Hollands hefst klukkan korter í sjö á Laugardalsvelli. 6. júní 2009 17:14 Samkomulagið mikilvægur áfangi í endurreisn Íslands Samkomulag um Icesave skuldbindingarnar svokölluðu er mikilvægur áfangi við endurreisn íslensks efnahagskerfis og trausts Íslands á alþjóðavettvangi. Þetta kom fram í máli Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, á fundi með blaðamönnum í stjórnarráðinu í dag. 6. júní 2009 16:54 Sigmundur Davíð: Íslendingar seldir í ánauð Formaður Framsóknarflokksins segir að verið sé að selja Íslendinga í ánauð með samkomulagi sem undirritað var í nótt um Icesave skuldbindingarnar svokölluðu. Hann segir samninginn vera ógn við sjálfstæði Íslands. „Þetta er rosalegt. Ég er búinn að vera hálfmiður minn frá því að þetta var kynnt í gærmorgun,“ segir formaðurinn. 6. júní 2009 17:15 Vextir af Icesave-láni 35 milljarðar á ári Íslenska ríkið mun ábyrgjast um 640 milljarða króna skuld til Breta vegna Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi, samkvæmt samkomulagi sem náðst hefur við bresk yfirvöld. Lánið mun bera 5,5 prósenta vexti á ári, en hvorki þarf að greiða afborganir né vexti næstu sjö ár. 6. júní 2009 05:15 Framsóknarþingmaður: Stjórnin er að svíkja þjóðina Eygló Harðardóttir, þingmaður og ritari Framsóknarflokksins, segir að með samkomulagi sínu við Breta og Hollendina um Icesave reikningana sé ríkisstjórnin að svíkja þjóðina. Hún segir að Samfylkingin hafi aldrei haft vilja til að kanna lagastöðu Íslands í málinu. „Ég tel þetta samkomulag vera mikil svik,“ segir þingmaðurinn. 6. júní 2009 14:31 Samkomulagið veitir ríkissjóði skjól í sjö ár Ríkisstjórnin telur að 33 til 170 milljarðar gætu fallið á ríkissjóð eftir sjö ár vegna Icesave skuldbindinga í Bretlandi og Hollandi sem samtals eru upp á 660 milljarða króna. Leiðtogar stjórnarflokkanna segja mikilvægt að samkomulagið skapi ríkissjóði algert skjól í sjö ár en á þeim tíma eru lán vegna Icesave afborgunarlaus. 6. júní 2009 18:57 Jóhanna og Steingrímur boða til blaðamannafundar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hafa boðað til blaðamannafundar um lausn Icesavedeilunnar. Fundurinn hefst klukkan fjögur. 6. júní 2009 15:06 Ísland frjálst undan hryðjuverkalögum fyrir þjóðhátíð Hryðjuverkalögum Breta gegn Íslendingum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verða aflétt eftir hálfan mánuð, samkvæmt samkomulagi íslensku samninganefndarinnar vegna Icesave við Breta og Hollendinga. Samningaviðræðum lauk um miðnætti í nótt. 6. júní 2009 10:01 Ekki lagalegar forsendur fyrir samkomulaginu um Icesave Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, er ósáttur við að stjórnvöld hafi ákveðið að greiða Icesave reikningana. Fram kom í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins að hann telji ekki lagalegar forsendur vera fyrir samkomulagi um greiðslurnar. 6. júní 2009 13:24 12 milljónir króna á fjölskyldu Höfuðstóll Icesave lánsins að viðbættum vöxtum myndi duga til að reka Háskóla Íslands í heila öld og sjö árum betur. Deilt niður á fjölskyldur landsins nemur upphæðin tólf milljónum króna á hverja vísitölufjölskyldu. 6. júní 2009 18:35 Bretar fagna Icesave samkomulaginu Bresk stjórnvöld fagna Icesave samkomulaginu sem nú hefur náðst. Vilji Íslendinga, til að ábyrgjast skuldbindingar sínar og endurgreiða reikningseigendum, þykir sérstakt fagnaðarefni samkvæmt fréttavefnum BBV. 6. júní 2009 15:01 Samkomulagið betra en fyrri drög Samkomulag það sem tókst í gærkvöldi um Icesave skuldbindingar Íslendinga er mun hagstæðara en drög að samkomulagi sem lágu fyrir í tíð ríkisstjórnar Geirs H. Haarde. Hryðjuverkalögum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verður aflétt eftir tæpan hálfan mánuð. 6. júní 2009 12:01 Gjaldþrot Seðlabankans stærra mál en Icesave Gjaldþrot Seðlabankans er enn stærra mál en Icesave. Vaxtakjörin á Icesave láninu gera það þó að verkum að Icesave er í fyrsta sæti þegar kemur að álögum á þjóðina. Þetta segir Ólafur Arnarson, hagfræðingur. 6. júní 2009 12:19 Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri Innlent Fleiri fréttir Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sjá meira
Vildi peninga í skiptum fyrir þrjú stig í landsleiknum Stuðningsmenn hollenska landsliðsins í knattspyrnu hafa lífgað upp á miðbæ Reykjavíkur með skemmtilegum hætti í allan dag en landsleikur Íslands og Hollands hefst klukkan korter í sjö á Laugardalsvelli. 6. júní 2009 17:14
Samkomulagið mikilvægur áfangi í endurreisn Íslands Samkomulag um Icesave skuldbindingarnar svokölluðu er mikilvægur áfangi við endurreisn íslensks efnahagskerfis og trausts Íslands á alþjóðavettvangi. Þetta kom fram í máli Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, á fundi með blaðamönnum í stjórnarráðinu í dag. 6. júní 2009 16:54
Sigmundur Davíð: Íslendingar seldir í ánauð Formaður Framsóknarflokksins segir að verið sé að selja Íslendinga í ánauð með samkomulagi sem undirritað var í nótt um Icesave skuldbindingarnar svokölluðu. Hann segir samninginn vera ógn við sjálfstæði Íslands. „Þetta er rosalegt. Ég er búinn að vera hálfmiður minn frá því að þetta var kynnt í gærmorgun,“ segir formaðurinn. 6. júní 2009 17:15
Vextir af Icesave-láni 35 milljarðar á ári Íslenska ríkið mun ábyrgjast um 640 milljarða króna skuld til Breta vegna Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi, samkvæmt samkomulagi sem náðst hefur við bresk yfirvöld. Lánið mun bera 5,5 prósenta vexti á ári, en hvorki þarf að greiða afborganir né vexti næstu sjö ár. 6. júní 2009 05:15
Framsóknarþingmaður: Stjórnin er að svíkja þjóðina Eygló Harðardóttir, þingmaður og ritari Framsóknarflokksins, segir að með samkomulagi sínu við Breta og Hollendina um Icesave reikningana sé ríkisstjórnin að svíkja þjóðina. Hún segir að Samfylkingin hafi aldrei haft vilja til að kanna lagastöðu Íslands í málinu. „Ég tel þetta samkomulag vera mikil svik,“ segir þingmaðurinn. 6. júní 2009 14:31
Samkomulagið veitir ríkissjóði skjól í sjö ár Ríkisstjórnin telur að 33 til 170 milljarðar gætu fallið á ríkissjóð eftir sjö ár vegna Icesave skuldbindinga í Bretlandi og Hollandi sem samtals eru upp á 660 milljarða króna. Leiðtogar stjórnarflokkanna segja mikilvægt að samkomulagið skapi ríkissjóði algert skjól í sjö ár en á þeim tíma eru lán vegna Icesave afborgunarlaus. 6. júní 2009 18:57
Jóhanna og Steingrímur boða til blaðamannafundar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hafa boðað til blaðamannafundar um lausn Icesavedeilunnar. Fundurinn hefst klukkan fjögur. 6. júní 2009 15:06
Ísland frjálst undan hryðjuverkalögum fyrir þjóðhátíð Hryðjuverkalögum Breta gegn Íslendingum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verða aflétt eftir hálfan mánuð, samkvæmt samkomulagi íslensku samninganefndarinnar vegna Icesave við Breta og Hollendinga. Samningaviðræðum lauk um miðnætti í nótt. 6. júní 2009 10:01
Ekki lagalegar forsendur fyrir samkomulaginu um Icesave Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, er ósáttur við að stjórnvöld hafi ákveðið að greiða Icesave reikningana. Fram kom í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins að hann telji ekki lagalegar forsendur vera fyrir samkomulagi um greiðslurnar. 6. júní 2009 13:24
12 milljónir króna á fjölskyldu Höfuðstóll Icesave lánsins að viðbættum vöxtum myndi duga til að reka Háskóla Íslands í heila öld og sjö árum betur. Deilt niður á fjölskyldur landsins nemur upphæðin tólf milljónum króna á hverja vísitölufjölskyldu. 6. júní 2009 18:35
Bretar fagna Icesave samkomulaginu Bresk stjórnvöld fagna Icesave samkomulaginu sem nú hefur náðst. Vilji Íslendinga, til að ábyrgjast skuldbindingar sínar og endurgreiða reikningseigendum, þykir sérstakt fagnaðarefni samkvæmt fréttavefnum BBV. 6. júní 2009 15:01
Samkomulagið betra en fyrri drög Samkomulag það sem tókst í gærkvöldi um Icesave skuldbindingar Íslendinga er mun hagstæðara en drög að samkomulagi sem lágu fyrir í tíð ríkisstjórnar Geirs H. Haarde. Hryðjuverkalögum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verður aflétt eftir tæpan hálfan mánuð. 6. júní 2009 12:01
Gjaldþrot Seðlabankans stærra mál en Icesave Gjaldþrot Seðlabankans er enn stærra mál en Icesave. Vaxtakjörin á Icesave láninu gera það þó að verkum að Icesave er í fyrsta sæti þegar kemur að álögum á þjóðina. Þetta segir Ólafur Arnarson, hagfræðingur. 6. júní 2009 12:19
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent