12 milljónir króna á fjölskyldu Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 6. júní 2009 18:35
Höfuðstóll Icesave lánsins að viðbættum vöxtum myndi duga til að reka Háskóla Íslands í heila öld og sjö árum betur. Deilt niður á fjölskyldur landsins nemur upphæðin tólf milljónum króna á hverja vísitölufjölskyldu. 660 milljarðar króna eru miklir peningar. En alls óvíst er hver kostnaður þjóðfélagsins verður af Icesave láninu þegar upp verður staðið. Stór hluti af eignum Landsbankans munu vera lán til fyrirtækja í Evrópu og Bandaríkjunum, samkvæmt heimildum fréttastofu, sem gefi af sér reglulegar tekjur á næstu árum. Þegar sagt er að menn geri sér vonir um að eignir bankans dugi fyrir 75% af Icesave láninu, er búið að reikna með vaxtagreiðslum, afföllum og hugsanlegri ávöxtun eigna á næstu 7 árum. Engu að síður er gagnlegt eftir talnaþoku vetrarins að glöggva sig á þeim upphæðum sem um ræðir. Ef ekkert verður greitt af Icesave láninu í 7 ár - eins og samningurinn leyfir - yrði upphæðin á núverandi gengi og virði komin í 960 milljarða króna að þeim árum liðnum. Deilt niður á fjölskyldur í landinu jafngildir sú upphæð 12 millljónum króna á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Rétt er að taka fram að því fer fjarri að samkomulagið feli í sér að fjölskyldur Íslands séu að bæta á sig tólf milljóna króna skuld, hér er eingöngu verið að setja tölur í samhengi. 960 milljarðar króna er það sem þyrfti á núvirði til að reka Landspítalann í nærri þrjá áratugi og hægt væri að reka elstu háskólastofnun landsins í heila öld og sjö árum betur fyrir þessa upphæð. En þótt samneyslan kosti sitt - þá voru svona upphæðir ekki stjarnfræðilegar í augum útrásarmanna góðærisins. Einn þeirra, einstaklingurinn Hannes Smárason, fyrrverandi forstjóri FL Group, skuldar eftir því sem best er vitað - 45 milljarða króna, sem er rétt um 7% af þessum 660 milljörðum króna sem Tryggingasjóður innistæðueigenda gekkst í ábyrgð fyrir í gærkvöld.
Tengdar fréttir Vildi peninga í skiptum fyrir þrjú stig í landsleiknum Stuðningsmenn hollenska landsliðsins í knattspyrnu hafa lífgað upp á miðbæ Reykjavíkur með skemmtilegum hætti í allan dag en landsleikur Íslands og Hollands hefst klukkan korter í sjö á Laugardalsvelli. 6. júní 2009 17:14 Samkomulagið mikilvægur áfangi í endurreisn Íslands Samkomulag um Icesave skuldbindingarnar svokölluðu er mikilvægur áfangi við endurreisn íslensks efnahagskerfis og trausts Íslands á alþjóðavettvangi. Þetta kom fram í máli Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, á fundi með blaðamönnum í stjórnarráðinu í dag. 6. júní 2009 16:54 Sigmundur Davíð: Íslendingar seldir í ánauð Formaður Framsóknarflokksins segir að verið sé að selja Íslendinga í ánauð með samkomulagi sem undirritað var í nótt um Icesave skuldbindingarnar svokölluðu. Hann segir samninginn vera ógn við sjálfstæði Íslands. „Þetta er rosalegt. Ég er búinn að vera hálfmiður minn frá því að þetta var kynnt í gærmorgun,“ segir formaðurinn. 6. júní 2009 17:15 Vextir af Icesave-láni 35 milljarðar á ári Íslenska ríkið mun ábyrgjast um 640 milljarða króna skuld til Breta vegna Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi, samkvæmt samkomulagi sem náðst hefur við bresk yfirvöld. Lánið mun bera 5,5 prósenta vexti á ári, en hvorki þarf að greiða afborganir né vexti næstu sjö ár. 6. júní 2009 05:15 Framsóknarþingmaður: Stjórnin er að svíkja þjóðina Eygló Harðardóttir, þingmaður og ritari Framsóknarflokksins, segir að með samkomulagi sínu við Breta og Hollendina um Icesave reikningana sé ríkisstjórnin að svíkja þjóðina. Hún segir að Samfylkingin hafi aldrei haft vilja til að kanna lagastöðu Íslands í málinu. „Ég tel þetta samkomulag vera mikil svik,“ segir þingmaðurinn. 6. júní 2009 14:31 Jóhanna og Steingrímur boða til blaðamannafundar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hafa boðað til blaðamannafundar um lausn Icesavedeilunnar. Fundurinn hefst klukkan fjögur. 6. júní 2009 15:06 Ísland frjálst undan hryðjuverkalögum fyrir þjóðhátíð Hryðjuverkalögum Breta gegn Íslendingum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verða aflétt eftir hálfan mánuð, samkvæmt samkomulagi íslensku samninganefndarinnar vegna Icesave við Breta og Hollendinga. Samningaviðræðum lauk um miðnætti í nótt. 6. júní 2009 10:01 Ekki lagalegar forsendur fyrir samkomulaginu um Icesave Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, er ósáttur við að stjórnvöld hafi ákveðið að greiða Icesave reikningana. Fram kom í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins að hann telji ekki lagalegar forsendur vera fyrir samkomulagi um greiðslurnar. 6. júní 2009 13:24 Bretar fagna Icesave samkomulaginu Bresk stjórnvöld fagna Icesave samkomulaginu sem nú hefur náðst. Vilji Íslendinga, til að ábyrgjast skuldbindingar sínar og endurgreiða reikningseigendum, þykir sérstakt fagnaðarefni samkvæmt fréttavefnum BBV. 6. júní 2009 15:01 Samkomulagið betra en fyrri drög Samkomulag það sem tókst í gærkvöldi um Icesave skuldbindingar Íslendinga er mun hagstæðara en drög að samkomulagi sem lágu fyrir í tíð ríkisstjórnar Geirs H. Haarde. Hryðjuverkalögum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verður aflétt eftir tæpan hálfan mánuð. 6. júní 2009 12:01 Gjaldþrot Seðlabankans stærra mál en Icesave Gjaldþrot Seðlabankans er enn stærra mál en Icesave. Vaxtakjörin á Icesave láninu gera það þó að verkum að Icesave er í fyrsta sæti þegar kemur að álögum á þjóðina. Þetta segir Ólafur Arnarson, hagfræðingur. 6. júní 2009 12:19 Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Sjá meira
Vildi peninga í skiptum fyrir þrjú stig í landsleiknum Stuðningsmenn hollenska landsliðsins í knattspyrnu hafa lífgað upp á miðbæ Reykjavíkur með skemmtilegum hætti í allan dag en landsleikur Íslands og Hollands hefst klukkan korter í sjö á Laugardalsvelli. 6. júní 2009 17:14
Samkomulagið mikilvægur áfangi í endurreisn Íslands Samkomulag um Icesave skuldbindingarnar svokölluðu er mikilvægur áfangi við endurreisn íslensks efnahagskerfis og trausts Íslands á alþjóðavettvangi. Þetta kom fram í máli Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, á fundi með blaðamönnum í stjórnarráðinu í dag. 6. júní 2009 16:54
Sigmundur Davíð: Íslendingar seldir í ánauð Formaður Framsóknarflokksins segir að verið sé að selja Íslendinga í ánauð með samkomulagi sem undirritað var í nótt um Icesave skuldbindingarnar svokölluðu. Hann segir samninginn vera ógn við sjálfstæði Íslands. „Þetta er rosalegt. Ég er búinn að vera hálfmiður minn frá því að þetta var kynnt í gærmorgun,“ segir formaðurinn. 6. júní 2009 17:15
Vextir af Icesave-láni 35 milljarðar á ári Íslenska ríkið mun ábyrgjast um 640 milljarða króna skuld til Breta vegna Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi, samkvæmt samkomulagi sem náðst hefur við bresk yfirvöld. Lánið mun bera 5,5 prósenta vexti á ári, en hvorki þarf að greiða afborganir né vexti næstu sjö ár. 6. júní 2009 05:15
Framsóknarþingmaður: Stjórnin er að svíkja þjóðina Eygló Harðardóttir, þingmaður og ritari Framsóknarflokksins, segir að með samkomulagi sínu við Breta og Hollendina um Icesave reikningana sé ríkisstjórnin að svíkja þjóðina. Hún segir að Samfylkingin hafi aldrei haft vilja til að kanna lagastöðu Íslands í málinu. „Ég tel þetta samkomulag vera mikil svik,“ segir þingmaðurinn. 6. júní 2009 14:31
Jóhanna og Steingrímur boða til blaðamannafundar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hafa boðað til blaðamannafundar um lausn Icesavedeilunnar. Fundurinn hefst klukkan fjögur. 6. júní 2009 15:06
Ísland frjálst undan hryðjuverkalögum fyrir þjóðhátíð Hryðjuverkalögum Breta gegn Íslendingum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verða aflétt eftir hálfan mánuð, samkvæmt samkomulagi íslensku samninganefndarinnar vegna Icesave við Breta og Hollendinga. Samningaviðræðum lauk um miðnætti í nótt. 6. júní 2009 10:01
Ekki lagalegar forsendur fyrir samkomulaginu um Icesave Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, er ósáttur við að stjórnvöld hafi ákveðið að greiða Icesave reikningana. Fram kom í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins að hann telji ekki lagalegar forsendur vera fyrir samkomulagi um greiðslurnar. 6. júní 2009 13:24
Bretar fagna Icesave samkomulaginu Bresk stjórnvöld fagna Icesave samkomulaginu sem nú hefur náðst. Vilji Íslendinga, til að ábyrgjast skuldbindingar sínar og endurgreiða reikningseigendum, þykir sérstakt fagnaðarefni samkvæmt fréttavefnum BBV. 6. júní 2009 15:01
Samkomulagið betra en fyrri drög Samkomulag það sem tókst í gærkvöldi um Icesave skuldbindingar Íslendinga er mun hagstæðara en drög að samkomulagi sem lágu fyrir í tíð ríkisstjórnar Geirs H. Haarde. Hryðjuverkalögum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verður aflétt eftir tæpan hálfan mánuð. 6. júní 2009 12:01
Gjaldþrot Seðlabankans stærra mál en Icesave Gjaldþrot Seðlabankans er enn stærra mál en Icesave. Vaxtakjörin á Icesave láninu gera það þó að verkum að Icesave er í fyrsta sæti þegar kemur að álögum á þjóðina. Þetta segir Ólafur Arnarson, hagfræðingur. 6. júní 2009 12:19