Erlent

Fjöldi fórnarlamba á dagheimilinu eykst

Barn flutt á sjúkrahús í dag.
Barn flutt á sjúkrahús í dag. Mynd/AP
Fjöldi barna sem létust eftir bruna á dagheimili í norðvesturhluta Mexíkó í gær eykst stöðugt. Nú eru 35 börn látin en að auki slösuðust tugir barna í eldinum, mörg hver afar illa.

Dagheimilið er í borginni Hermosillo og eru að jafnaði um 100 börn á heimilinu á aldrinum sex mánaða til fimm ára.

Fjöldi barna hafa verið flutt á spítala sem sérhæfir sig í brunatilfellum í Sacramento í Kaliforníu.

Felipe Calderon, forseti Mexíkó, hefur fyrirskipað að fram fari opinber rannsókn á eldsvoðanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×