Innlent

Nýr Icesave samningur í burðarliðnum

Fréttastofan hefur fyrir því heimildir að unnið hafi verið á bak við tjöldin að drögum að nýjum Icesave samningi við Hollendinga og Breta. Stjórnvöld leita leiða til nýrrar lagasetningar sem væntanlega voru ræddar á þingflokksfundum í dag og ríkisstjórnarfundi sem hófst klukkan sex.

Alþingi samþykkti frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave reikninganna í síðasta mánuði. Það hafði tekið drjúgan tíma að samþykkja lögin; líklega hafa fá þingmál fengið jafn ítarlega umfjöllun í þinginu.

Síðan var beðið viðbragða Hollendinga og Breta. Þau komu svo og voru sögð vera óformleg fyrstu viðbrögð. Meðal þess sem Bretar og Hollendingar sættu sig ekki við í lögunum frá Alþingi, var að endurskoða þyrfti samkomulag ríkjanna, Íslendinga og svo Hollendinga og Breta, ef það liti út fyrir að skuldin yrði ekki greidd, árið 2024.

Fréttastofa hefur fyrir því heimildir að raunverulegar samningaviðræður hafi hafist að nýju við Hollendinga og Breta, eftir að Alþingi samþykkti lögin. Nú liggi fyrir drög að nýju samkomulagi milli ríkjanna en málinu er ekki lokið. Ekki vilja allir heimildarmenn fréttastofu ganga svo langt að kalla þetta samningsdrög og leggja áherslu á að ekki hafi verið skrifað undir neitt.

Ekki fæst upplýst hvað í samningsdrögunum stendur, eða um hvað nákvæmlega er rætt. Þó hefur komið fram að Bretar og Hollendingar líti svo á að þeir hafi lánað Íslendingum fyrir Icesave ábyrgðinni. Heimildarmaður segir að þeir sem veiti lán, geri ráð fyrir því að fá það að fullu greitt. Þá mun einnig vera rætt um lagalega fyrirvara.

Nú sé málið þannig statt, segir heimildarmaður, að leita þurfi skynsamlegrar útgöngu úr lagasetningunni frá í sumar; með öðrum orðum; stjórnvöld eru með drög að nýjum samningi og Alþingi þarf að samþykkja nýja ríkisábyrgð; eigi að ljúka málinu.

Fréttastofa hefur haft fregnir af minnisblaði um málið sem ráðherrar hafa fengið að sjá, en ekki fengið í hendur. Einn ráðherra orðaði það svo að sér liði í þessu máli, eins og starfsmanni á plani.


Tengdar fréttir

Afsögnin kemur ekki á óvart

„Mín viðbrögð eru þau að ég er nú bara að heyra af þessu fyrst núna," segir Þráinn Bertelsson þingmaður aðspurður um viðbrögðin við afsögn Ögmundar Jónassonar úr ríkisstjórn.

Ögmundur að biðjast lausnar?

Orðrómur er uppi um að Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra muni segja af sér ráðherradómi vegna andstöðu sinnar við Icesave málið. Hann hitti Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á fundi í Stjórnarráðinu nú í hádeginu.

Stjórnin fellur ef ekki næst samstaða um Icesave-málið

Náist ekki samstaða um lyktir Icesave-málsins innan ríkisstjórnarflokkanna í vikunni er ríkisstjórnarsamstarfinu sjálfhætt. Þetta er mat Jóhönnu Sigurðardóttur, sem hefur misst alla þolinmæði vegna málsins, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Sigmundur segir Norðmenn til í risalán til Íslendinga

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins segir að Norski miðflokkurinn, systurflokkur Framsóknarflokksins, sé búinn að opna á að Íslendingum verði lánaðar verulegar upphæðir, allt að 2000 milljörðum íslenskra króna í gegnum tvíhliða samninga.

Ríkisráðsfundur á morgun

Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman á Bessastöðum á morgun fimmtudag. Á fundinum lætur Ögmundur Jónasson af embætti heilbrigðisráðherra. Fundurinn hefst klukkan 11:45.

Afsögn Ögmundar kom á óvart - fundar með Steingrími

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að afsögn Ögmundar Jónassonar hafi komið sér á óvart. Hún segir að Ögmundur hafi beðið um fundinn í morgun. Jóhanna segir að ekki sé búið að velja eftirmann Ögmunds, fyrst verði hún að ræða við Steingrím J. Sigfússon formann VG en fundur þeirra hófst klukkan eitt.

Þingflokkur VG fundar vegna afsagnar

Þingmenn og ráðherrar Vinstri grænna eru á leiðinni á þingflokksfund. Þar verður væntanlega rætt um afsögn Ögmundar Jónassonar, sem sagði af sér sem heilbrigðisráðherra nú í hádeginu.

Óvíst með ákvörðun um nýjan ráðherra

Óvíst er hvort þingflokkur Vinstri grænna taki ákvörðun um það á fundi sínum í kvöld hver verður eftirmaður Ögmundar Jónassonar í embætti heilbrigðisráðherra.

Ríkisstjórnarfundur klukkan sex

Boðað hefur verið til fundar í ríkisstjórn Íslands í dag klukkan sex. Þar verður væntanlega farið yfir mál dagsins en Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra sagði af sér í hádeginu. Þingflokkar Samfylkingar og VG hittast á þingflokksfundum í dag. Fundur VG hefst klukkan tvö og samfylkingarmenn hittast klukkan fjögur.

Ögmundi augljóslega stillt upp við vegg

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir ríkisstjórnina vera komna í öngstræti og verði í raun að víkja. Hann furðar sig á því að Ögmundur Jónasson hafi sagt af sér ráðherraembætti og gefur sér að hann hafi verið beittur þrýstingi. Núna sé eini maðurinn sem er í takti við þjóðina í Icesavemálinu farinn úr ríkisstjórn.

Framsóknarmenn með tillögur í lánamálum Íslendinga

Framsóknarmennirnir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Höskuldur Þórhallsson voru staddir í Stjórnarráðinu á sama tíma og Ögmundur Jónasson sagði sig úr ríkisstjórninni. Höskuldur Þórhallsson varaformaður flokksins vildi lítið tjá sig um málið í samtali við vísi og vísaði á formanninn Sigmund Davíð. Höskuldur sagði þó að Ögmundur væri maður að meiri að hafa hætt í stjórninni.

Mikið uppnám innan Samfylkingarinnar vegna afsagnar

Þingflokkur Samfylkingarinnar er í miklu uppnámi eftir að Ögmundur Jónasson sagði af sér sem heilbrigðisráðherra í hádeginu í dag. Þá er mikill undirliggjandi pirringur af hálfu flokksins vegna ákvarðanna Vinstri grænna undanfarið í orkumálu samkvæmt heimildum Vísis. Vinstri grænir sitja núna á þingflokksfundi en Samfylkingin fundar klukkan fjögur.

Of mikill niðurskurður í heilbrigðiskerfinu

Ögmundur Jónasson, fráfarandi heilbrigðisráðherra, telur að verið sé að skera of mikið niður í heilbrigðiskerfinu. Hann segist ekki hafa verið að forðast fyrirhugaðan niðurskurð þegar hann baðst lausnar í dag.

Farnir af fundi

Ögmundur Jónasson og Jón Bjarnason eru farnir af þingflokksfundi VG sem nú stendur yfir en fundurinn er talinn geta skorið úr um hvort ríkisstjórnarsamstarfið við Samfylkinguna haldi.

Ögmundur hættur í ríkisstjórninni

Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra sagði af sér að loknum fundi með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í Stjórnarráðinu fyrir stundu. Um leið lýsti hann yfir eindregnum stuðningi við ríkisstjórn Samfylkingar og VG.

Bessastaðir í biðstöðu hjá Jóhönnu

Líf ríkisstjórnarinnar hangir á bláþræði og stendur og fellur með því hvort að þingflokkur VG samþykkir að fylkja sér að baki nýrrar breytingatillögu Icesave sem ríkisstjórnin hyggst leggja fram á næstu dögum. Fáist ekki stuðningur herma heimildir fréttastofu að Jóhanna Sigurðardóttir muni ganga á fund forseta Íslands og krefjast lausnar.

Jóhönnu veitt umboð til að ljúka Icesave málinu

„Forsætisráðherra var veitt afdráttarlaust umboð þingflokksins til að halda áfram og ljúka Icesave málinu,“ segir Björgvin G. Sigurðsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, en rúmlega tveggja klukkustunda fundi þingflokksins lauk á sjötta tímanum í dag.

Þingflokkurinn vill halda ríkisstjórnarsamstarfinu áfram

Steingrímur J. Sigfússon fjármálraáðherra og formaður VG sagði að loknum þingflokksfundi að allir þingmenn og ráðherrar hefðu lagt á það áherslu að ríkisstjórnarsamstarfinu yrði haldið áfram. Hann sagðist sleginn yfir ákvörðun Ögmundar Jónassonar sem hefur sagt sig úr ríkisstjórn en sagðist jafnframt virða ákvörðunina. Steingrímur sagði þingflokkinn ákveða hver yrði eftirmaður Ögmundar og það yrði gert fljótlega. ÞIngflokkur VG ætlar að funda aftur seint í kvöld.

Pólitísk endalok Jóhönnu

Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, telur brotthvarf Ögmundar Jónassonar sem heilbrigðisráðherra vera ótvírætt vantraust á hæfileika Jóhönnu Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formann Samfylkingarinnar. Björn telur að nú sé komið að pólitískum endalokum Jóhönnu.

Þingflokksfundur hafinn hjá VG

Þingmenn VG sitja nú á fundi sem boðað var til í framhaldi af afsögn Ögmundar Jónassonar heilbrigðisráðherra í hádeginu. Fundurinn hófst upp úr klukkan tvö og vildu þingmenn ekkert tjá sig við fjölmiðla áður en þeir gengu á fundinn.

Fundi ríkisstjórnar lokið - sátt um næstu skref

„Það er full sátt í ríkisstjórninni um það að fara áfram með þetta mál og ná ásættanlegri niðurstöðu sem við förum væntanlega með fyrir þingið á fyrstu dögum þingsins,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, að loknum ríkisstjórnarfundi á áttunda tímanum í kvöld. Hún og Steingrímur ræddu við blaðamenn fyrir utan stjórnarráðið. Þau vildu ekki ræða efnislega um Icesvae og drög að nýju samkomulagi við Breta og Hollendinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×