Mikið uppnám innan Samfylkingarinnar vegna afsagnar 30. september 2009 14:28 Frá þingflokksfundi Samfylkingarinnar í vor.
Þingflokkur Samfylkingarinnar er í miklu uppnámi eftir að Ögmundur Jónasson sagði af sér sem heilbrigðisráðherra í hádeginu í dag. Þá er mikill undirliggjandi pirringur af hálfu flokksins vegna ákvarðanna Vinstri grænna undanfarið í orkumálu samkvæmt heimildum Vísis. Vinstri grænir sitja núna á þingflokksfundi en Samfylkingin fundar klukkan fjögur. Þá hefur verið boðað til ríkisstjórnarfundar klukkan sex í dag. Þá sagði einn þingmaður innan Samfylkingarinnar að ástandið væri tvísýnt. Vísir greindi frá því að líf ríkisstjórnarinnar hangir á bláþræði. Hún fellur ákveði þingflokkur VG að fylkja sér gegn breytingatillögu Icesave sem ríkisstjórnin hyggst leggja fram á næstu dögum. Fáist ekki stuðningur herma heimildir fréttastofu að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, muni ganga á fund forseta Íslands og krefjast lausnar. Ofan á ágreining flokkanna vegna Icesave málsins leggst djúpstæður pirringur Samfylkingarinnar vegna orkumála. Vinstri grænir lögðust gegn því að viljayfirlýsing um álver á Bakka yrði framlengd. Þá tók steininn úr í gær þegar Svandís Svavarsdóttir hnekkti úrskurði umhverfisstofnunnar um raflínur til Helguvíkur. Sú ákvörðun er talin seinka framkvæmdum talsvert. Nú í hádeginu sagði Ögmundur svo af sér vegna andstöðu við Icesave málið. Óttast er að Ögmundur hafi eflt andstöðu þeirra sem voru á móti Icesvave í þingflokki VG með ákvörðun sinni. Heimildir herma að Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, reyni hvað hann getur til þess að sætta ólík sjónarmið á milli flokka.
Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Erlent Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Innlent Fleiri fréttir Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Sjá meira