Erlent

Danir óttast minkaflensusmit

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Danir telja veiruna að mörgu leyti líka svínaflensuveirunni. Mynd/ AFP.
Danir telja veiruna að mörgu leyti líka svínaflensuveirunni. Mynd/ AFP.
Dönsk heilbrigðisyfirvöld hafa sent út viðvörun vegna þess að minkar á að minnsta kosti ellefu minkabúum á Holsterbro svæðinu hafa nýlega greinst með nýtt afbrigði af inflúensuvírus.

„Þessar aðstæður skapa ákveðnar áhyggjur vegna þess að við sjáum að veiran á upptök sín í fólki. Af þeirri ástæðu teljum við töluverðar líkur á því að inflúensan geti smitast aftur í menn," segir Poul Henrik Jørgensen dýralæknir.

Í umfjöllun um málið á vef Danmarks Radio segir að dönsk yfirvöld fylgist grannt með gangi mála því að veiran þyki svipa mikið til svínaflensuveirunnar sem átti upptök sín í Mexíkó í vor. Það gerðist líklegast með því að flensuveiran smitaðist aftur úr svíni til manns.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×