Enski boltinn

Dossena: Aquilani slær í gegn í ensku úrvalsdeildinni

Ómar Þorgeirsson skrifar
Rafa Benitez ásamt Alberto Aquilani.
Rafa Benitez ásamt Alberto Aquilani. Nordic photos/AFP

Ítalski Varnarmaðurinn Andrea Dossena hjá Liverpool er sannfærður um að landi sinn og liðsfélagi Alberto Aquilani eigi eftir að sanna virði sitt hjá félaginu eftir að vera keyptur á 17 milljónir punda í sumar.

Hinn 25 ára gamli Aquilani hefur verið meiddur síðan hann kom en er nú óðum að jafna sig og er byrjaður að æfa lítillega. Dossena telur að Aquilani geti látið strax til sín taka þegar hann byrjar að spila með liðinu.

„Hann er frábær leikmaður sem er með mjög góðan leikskilning og ég held að hann muni aðlagast ensku úrvalsdeildinni fljótt og vel. Alberto gefur Liverpool aukna breidd því hann getur leyst margar stöður á miðjunni og er mjög skapandi leikmaður og það væri því gaman að sjá hann og Steven Gerrard spila saman," er haft eftir Dossena í viðtali við The Sun.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×