Enski boltinn

Wenger hefur trú á Almunia

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur enn fulla trú á spænska markverðinum Manuel Almunia sem hefur enn á ný verið gagnrýndur. Nú síðast eftir frammistöðu sína gegn Liverpool.

Arsenal vann reyndar leikinn en tilburðir Almunia í leiknum hafa enn frekar styrkt marga í trúnni að hann sé einfaldlega ekki nógu góður fyrir lið eins og Arsenal.

„Ég er búinn að fara vel yfir leikinn gegn Liverpool. Boltinn fór af Lucas í markinu og ég hafði ekki séð það áður. Ég hef fulla trú á honum og hann mun standa í markinu í kvöld," sagði Wenger.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×