Dregur úr stuðningi við hernaðinn í Afganistan 8. október 2009 00:30 Líkin borin heim Hernaðurinn í Afganistan hefur til þessa kostað meira en 800 Bandaríkjamenn lífið. nordicphotos/AFP
Barack Obama Bandaríkjaforseti kallaði í gær á sinn fund helstu ráðgjafa sína í öryggismálum til að ræða framhald hernaðarins í Afganistan. Átta ár voru í gær liðin frá því að bandarískir og breskir hermenn réðust inn í Afganistan. Obama lýsti því yfir fyrr á árinu að fjölgað yrði verulega í herliði Bandaríkjanna í Afganistan, nú þegar dregið væri úr viðbúnaði bandaríska hersins í Írak. Undanfarið hefur hann þó dregið í land með það, en segir nú að í það minnsta verði ekki fækkað í herliðinu. Á þriðjudaginn áttu leiðtogar bæði repúblikana og demókrata á Bandaríkjaþingi níutíu mínútna fund með Obama um Afganistan. Sá fundur virðist ekki hafa breytt neinu um afstöðu flokkanna, því repúblikanar halda áfram að hvetja Obama til þess að fara að ráðum hershöfðingja sinna, en demókratar segja hann ekki þurfa að flana að neinu. Obama hefur þó þegar sent rúmlega tuttugu þúsund hermenn til Afganistans á árinu, til viðbótar við þau 38 þúsund sem fyrir voru. Bandaríkjamenn eru smám saman að komast á þá skoðun, að hernaðurinn í Afganistan sé ekki til góðs. Nú er svo komið að einungis 40 prósent styðja hernaðinn þar, en í júlí síðastliðnum voru 44 prósent fylgjandi. Átta ára hernaður í Afganistan hefur kostað rúmlega 800 bandaríska hermenn lífið. Í Bretlandi er ekki heldur mikil stemning fyrir stríðsrekstri í Afganistan. Meira en helmingur Breta er andvígur því að breski herinn sé þar að athafna sig, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Talibanar segja hins vegar að Vesturlöndum stafi engin hætta af þeim, þótt þeir muni áfram berjast gegn erlendu hernámsliði. - gb
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Innlent Fleiri fréttir Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Sjá meira