Erlent

Lúxushótel í Pakistan sprengt upp

Frá öðru ódæðisverki í Pakistan.
Frá öðru ódæðisverki í Pakistan.
Ellefu manns eru látnir og 46 særðir eftir vörubíll fullur af sprengiefni var sprengdur við hótelið Peral Continental í borginni Peshawar í Pakistan.

Að sögn lögreglu óku þrír menn vörubílnum að aðalhliði hótelsins og hófu skothríð að öryggisvörðum áður en þeir óku inn fyrir hliðið.

Sprengjan sprakk á Khyber Road svæðinu sem talið er nokkuð öruggt alla jafna. Hótelið sem um ræðir er vinsælt meðal útlendinga og auðugra Pakistana.

Forsætisráðherra Pakistan, Yousuf Razan Gilani hefur fordæmt árásina og sagt hana til skammar þeim hryðjuverkamönnum sem bera ábyrgð á henni.

Á síðasta ári sprakk sprengja á Marriott Hótelinu í Islamabad og biðu yfir fimmtíu manns bana í þeirri sprengingu og enn fleiri særðust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×