Stjórnvöld skera upp herör gegn Nígeríubréfum 28. október 2009 04:00 Nígeríubréf. Svindlbréf frá Nígeríu hafa oft ratað hingað til lands. Yfirleitt er fólki lofað gull og grænir skógar í staðinn fyrir smá viðvik sem reynist hins vegar vera svik.
Yfirvöld í Nígeríu hafa skorið upp herör í baráttunni gegn netsvindli – svokölluðum Nígeríubréfum – sem streymt hafa frá landinu síðustu ár. Lögregluyfirvöld í Nígeríu segjast þegar hafa lokað þúsund vefsíðum sem geyma slíka bréf og handtekið átján manns. Aðgerðin, sem gengur undir nafninu Aðgerð Arnarkló, er nýhafin og búist er við að hún verði komin á fullt á næsta ári. Líklegt þykir að mun fleiri verði handteknir. Fullvíst er talið er að þeir sem standa að baki bréfunum hafi haft margar milljónir dollara upp úr krafsinu. Aðgerðin er að sögn Farida Waziri, formanni nefndar gegn viðskipta- og efnahagsglæpum, ekki einungis hugsuð til að koma í veg fyrir netglæpi heldur einnig til að reyna að endurvekja orðspor Nígeríu sem hafi orðið illa úti vegna Nígeríubréfanna. „Aðgerðin mun koma Nígeríu af lista yfir þau lönd þar sem mest netsvindl er stundað,“ sagði Waziri. Hún segir yfirvöld í Nígeríu starfa með tölvurisanum Microsoft til að uppræta bréfin og býst við að hægt verði að stöðva allt að fimm þúsund ný svindlbréf í hverjum mánuði. Þá býst hún við að senda yfir 230 þúsundir tölvupósta í hverjum mánuði þar sem varað verður við Nígeríubréfunum. - kh d
Mest lesið Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Innlent Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Innlent Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Erlent Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Innlent Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Innlent Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Erlent Fleiri fréttir Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Rappsveitin sem sætti hryðjuverkarannsókn sleppur með skrekkinn Skotinn til bana þegar hann söng Linkin Park á karókíkvöldi Bretar hyggjast lækka kosningaaldur í sextán ár Að minnsta kosti 25 börn seld frá Indónesíu til Singapúr Þjónkun við Trump?: CBS leggur niður Late Show „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Saksóknari í Epstein-málinu látinn taka pokann sinn Borgarstjóri Istanbúl í tuttugu mánaða fangelsi Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Ísrael sprengir í Sýrlandi: Þrír látnir og tugir særðir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Leynd aflétt af leynilegri áætlun um móttöku Afgana Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart Sjá meira