Erlent

Kínverskir foreldrar krefjast bóta

Ein mæðranna sem misstu barn vegna mjólkurinnar.
Ein mæðranna sem misstu barn vegna mjólkurinnar. Mynd/AFP

Kínverskir dómstólar hafa nú til meðferðar fyrsta skaðabótamálið í tengslum við mjólkurhneykslið á síðasta ári. Þá létust að minnsta kosti sex börn og 300 þúsund veiktust eftir hafa drukkið eitraða mjólk. Það eru foreldrar tveggja barna sem veiktust sem höfða málið.

Mjólkin hafði verið þynnt út og efninu melamín bætt út í hana til þess að gabba eftirlitsmenn sem fylgdust með prótín innihaldi hennar. Melamín er meðal annars notað við framleiðslu á plasti og áburði.

Tveir menn voru líflátnir fyrr í vikunni vegna málsins. Þrír aðrir yfirmenn hlutu fimm til fimmtán ára fangelsisdóma. 19 aðrir bíða dóms.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×