Enski boltinn

Harry Redknapp: Leikurinn átti að vera búinn í stöðunni 2-0

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Harry Redknapp, stjóri Tottenham.
Harry Redknapp, stjóri Tottenham. Mynd/AFP
Harry Redknapp, stjóri Tottenham, var skiljanlega mjög ósáttur með að lið hans tapaði niður tveggja marka forskoti í 2-2 jafntefli á móti Everton á Goodison Park.

„Leikurinn átti að vera búinn í stöðunni 2-0 en þá gefum við þeim mark. Við vorum að fara illa með fullt af færum sem hefðu klárað leikinn," sagði Harry Redknapp en vildi ekki gera of mikið úr vítaspyrnunni sem Jermain Defoe klikkaði á.

„Menn klikka á vítaspyrnum og það gerist bara. Við vorum 2-0 yfir og með fulla stjórn á leiknum og því eru það gríðarlega mikil vonbrigði að fá aðeins eitt stig," sagði Redknapp.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×