Gunnar Heiðar: 90 prósent líkur á að ég semji við Reading í vikunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. desember 2009 19:15 Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Mynd/Daníel
Gunnar Heiðar Þorvaldsson sagði í samtali við Íþróttadeild Stöðvar 2 í kvöld að það séu 90 prósent líkur á að hann verði leikmaður Reading á næstu dögum. Gunnar Heiðar yrði þá fjórði Íslendingurinn í liðinu en fyrir eru Ívar Ingimarsson, Brynjar Björn Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson. Gunnar Heiðar hefur fengið fá tækifæri hjá Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni í vetur en fór á reynslu til enska B-deildarliðsins Reading á dögunum. Gunnar Heiðar nýtti tækifærið sitt vel því hann skoraði tvö mörk á þremur mínútum í sérstökum æfingaleik sem var settur upp fyrir hann með varaliði Reading. Þjálfari Reading vill fá hann strax en Danirnir hafa verið tregir til að leyfa honum að fara. „Það er skrítið en ég held að þeir séu að mýkjast núna," sagði Gunnar Heiðar í viðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2. „Reading hefur rosalega mikinn áhuga á því að fá mig og ég átti gott spjall við þjálfarann. Hann er með stórt hlutverk fyrir mig í liðinu. Þeir töluðu um það að ég gæti byrjað á lánsamningi. Við vorum nokkurn veginn búnir að semja um það við Esbjerg," sagði Gunnar Heiðar í spjalli við Hans Bjarnason. „Ég gæti þá farið á láni frá Esbjerg í einhvern tíma með síðan möguleika á samningi eftir það. Eigum við ekki að segja að það séu 80 til 90 prósent líkur á að ég fari til Reading. Ég vona að það gerist eftir helgi," sagði Gunnar Heiðar þegar Hans spurði hann hreint út um hversu miklar líkur væru á að þetta gengi eftir. Fyrsti leikur Reading á nýju ári er ekki af smærri gerðinni því liðið mætir Liverpool í ensku bikarkeppninni 2. janúar.
Mest lesið Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Fótbolti „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fótbolti UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fótbolti Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Sport Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf Segir Horner vera að trufla Ferrari Formúla 1 Fleiri fréttir Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Sjá meira