Erlent

Þingmenn sniðgengu sigurveislu forseta Írans

Mahmoud Ahmadinejad.
Mahmoud Ahmadinejad. Mynd/AP
Ríflega helmingur þingheims í Íran sniðgekk sigurveislu Mahmouds Ahmadinejads, endurkjörins forseta Írans, sem haldin var í gærkvöldi. Þetta mun til marks um djúpstæðan klofning á æðstu stöðum í Íran vegna forsetakosninganna fyrir hálfum mánuði.

Öllum 290 þingmönnum á íranska löggjafarþinginu var boðið til veislunnar sem haldin var í Teheran í gærkvöldi. BBC greinir frá því að aðeins 105 þingmenn hafi mætt og því virðist sem 185 hafi sniðgengið veisluna.

Fyrirfram var búist við að 50 þingmenn myndu ekki mæta enda væru það andstæðingar forsetans. Því kemur nokkuð á óvart að svo margir hafi ákveðið að halda sig heima.

Þar á meðal var Ali Larijani, þingforseti. Hann er sammála harðri stefnu Ahmadinejads í mörgum málum en hefur gagnrýnt hvernig stjórnvöld hafa tekið á mótmælum stjórnarandstæðinga síðustu daga en mótframbjóðendur forsetans hafa hvatt til aðgerða og sakað Ahmadinejad um kosningasvik.

Stjórnmálaskýrendur BBC segja þetta til marks um djúpstæðan ágreining á efstu stöðum í íranska stjórnkerfinu vegna málsins.

Helsti andstæðingur Íransforseta, Mir Hussein Mousavi, hvatti áfram til mótmæla á vefsíðu sinni í morgun. Hann bað stuðningsmenn sína um að fara fram með friðsömum hætti. Hann ætli að halda baráttu sinni áfram þó mjög hafi verið þrýst á hann að hætta því. Til átaka hefur komið í mótmælum síðustu daga og margir fallið.




Tengdar fréttir

Átök milli mótmælenda og lögreglu

Lögregla og sérsveitir börðu niður mótmæli í Teheran í Íran í gær. Hundruð mótmælenda höfðu komið saman þrátt fyrir bann og hótanir íranskra yfirvalda.

Bretar kalla fjölskyldur heim frá Íran

Breska utanríkisráðuneytið hefur kallað fjölskyldur starfsmanna sendiráðsins í Íran heim vegna óróleika í landinu í kjölfar forsetakosninganna. Starfsmenn sendiráðsins munu dvelja áfram í Íran og sinna störfum sínum.

Breskir embættismenn reknir frá Íran

Tveir breskir embættismenn í Íran voru sendir úr landi í gær. Það var gert í kjölfar ásakana um að bresk stjórnvöld hafi skipt sér með óeðlilegum hætti af kosningunum í Íran hinn 12. júní síðastliðinn.

Obama fordæmir ofbeldið í Íran

Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, fordæmdi aðgerðir írönsku ríkisstjórnarinnar gagnvart mótmælendum harðlega í dag.

Ætla með kosningaúrslitin fyrir dómstóla

Leiðtogar stjórnarandstöðunnar í Íran segjast munu leita réttar síns fyrir dómstólum vegna úrslita forsetakosninganna sem þeir fullyrða að hafi verið svindl.

Komu í veg fyrir hryðjuverkaárásir á kjördag

Írönsk yfirvöld segjast hafa komið í veg fyrir sprengjuárásir hryðjuverkamanna á kjördag í Íran fyrir tæpri viku. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneyti leyniþjónustumála tókst lögreglu og leyniþjónustustofnunum í Íran að koma í veg fyrir sprengjuárásir í moskum og á fjölförnum stöðum í höfuðborginni Teheran síðasta föstudag þegar forsetakosningar fóru fram í landinu.

Íranir endurskoða tengslin við Breta

Utanríkismálanefnd íranska þingsins, lagði í dag að utanríkisráðuneytinu, að endurskoða tengslin við Bretland vegna óviðurkvæmilegra afskipta af hinum umdeildu forsetakosningum.

Mótmælendur deyja í Íran

Ríkissjónvarpsstöðin í Íran greindi frá því í gær að þrettán hefðu látist í átökum mótmælenda og óeirðalögreglu í gær í miðborg Teheran í Íran. Fréttastofur á borð við CNN segja þó að tala látinna sé mun hærri.

Hluti atkvæða endurtalinn í Íran

Byltingarráðið í Íran hefur ákveðið að endurtelja tíu prósent atkvæða í þeim tilgangi að róa mótmælendur sem halda því fram að niðurstöður kosninganna 12. júní síðastliðinn séu rangar. Tugir þúsunda mótmæltu í dag í miðborg Teheran í Íran.

Rólegra í Teheran

Ró færðist yfir götur Teheran í Íran í dag eftir að ríkissjónvarpsstöðin þar í landi greindi frá því að tíu til viðbótar hafi látist í átökum mótmælenda og óeirðalögreglu í gær. Sjónvarpsstöðin greindi líka frá því lögregla hafi handtekið dóttur og fjóra aðra ættinga fyrrverandi forseta landsins, Hashemi Rafsanjani, í gær. Rafsanjani er einn valdamesti maður landsins.

Hvetur Írani til að hætta mótmælum vegna kosninganna

Khamenei, æðstiklerkur í Íran, hvetur landa sína til að hætta mótmælum vegna forsetakosninganna í síðustu viku. Haldi mótmæli áfram verði blóðbað vegna þeirra á ábyrgð frambjóðenda sem játi sig enn ekki sigraða.

Byltingarráðið ógildir ekki forsetakosningarnar

Byltingarráðið í Íran ætlar ekki að ógilda forsetakosningarnar sem fram fóru í landinu fyrr í mánuðinum enda bendi ekkert til alvarlegra annmarka á framkvæmd þeirra. Stjórnarandstæðignar eru hvattir til að mótmæla frekar. Guðjón Helgason.

Íranir segja CIA fjármagna mótmælin

Íranska innanríkisráðuneytið segir að bandaríska leyniþjónustan, CIA, fjármagni mótmæli síðustu daga gegn úrslitum forsetakosninganna í landinu fyrir tæpum hálfum mánuði. Það hafi Bretar og Ísraelar einnig gert.

Merkel gagnrýnir æðsta klerk Írans

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, gagnrýnir Ali Khamenei, æðsta klerk Írans, og segir ræðu sem hann flutti í morgun hafa verið mikil vonbrigði.

Mousavi hvetur mótmælendur í Íran

Mir Hossein Mousavi, forsetaframbjóðandi og leiðtogi írönsku stjórnarandstöðunnar, hvetur fylgismenn sína til að halda áfram mótmælum gegn endurkjöri Mahmoud Ahmadinejad forseta.

Mótmælt sjötta daginn í röð

Búist er við fjölmennum mótmælum í Íran sjötta daginn í röð vegna úrslita forsetakosninga þar í landi fyrir tæpri viku. Byltingarráðið í Íran hefur kallað frambjóðendurna þrjá sem biðu ósigur til að bera vitni fyrir helgina vegna rannsóknar á ásökunum um kosningasvik.

Ban Ki-moon krefst þess að Íranar láti af ofbeldi

Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, krefst þess að stjórnvöld í Íran láti þegar af handtökum og ofbeldi gegn mótmælendum sem undanfarna daga hafa haft uppi hávær mótmæli vegna úrslita forsetakosninganna þar í landi en grunur leikur á að endurkjör Mahmouds Ahmadinejad forseta hafi verið knúið fram með vafasömum hætti.

Háskólanum í Teheran rústað - myndir á Facebook

Myndir voru birtar á samskiptasíðunni Facebook í dag sem sagðar eru sýna eyðileggingu í Háskólanum í Teheran. Varalið hliðhollt Íransforseta er sagt hafa ráðist þar með ofbeldi gegn stjórnarandstæðingum. Úrslitum forsetakosninganna í síðustu viku var áfram mótmælt í írönsku höfuðborginni í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×