Enski boltinn

Sundboltastrákurinn ældi eftir leikinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Markið fræga.
Markið fræga.

Unglingsstrákurinn sem er ábyrgur fyrir líklega furðulegasta marki i sögu ensku úrvalsdeildarinnar er kominn úr felum og hefur beðist afsökunar. Strákurinn heitir Callum Campbell og er aðeins 16 ára.

„Það var ég sem gerði þetta. Mér þykir þetta alveg hræðilega leiðinlegt og biðst afsökunar. Þetta er mín langversta martröð," sagði Campbell við Sunday Mirror.

„Þegar ég kom heim þá fór ég út í garð og ældi. Ég varð bara veikur, þetta var slíkt áfall. Þarna voru morðhótanirnar ekki einu sinni byrjaðar að koma," sagði Campbell.

„Ég horfði á þetta atvik hvað eftir annað daginn eftir og ég skil ekki enn hvernig þetta gat gerst. Mamma segir að þetta hafi ekki verið mér að kenna og ég trúi því. Dómarinn átti aldrei að leyfa markið. Ég vona bara að alvöru stuðningsmenn liðsins skilji það og fyrirgefi mér þetta."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×